Ef kortinu var stolið eða þú sérð ókunnugar færslur á yfirlitinu þínu, þá er mikilvægt að fara strax í appið og loka kortinu sem stolnu. Við það lokast á allar frekari færslur með kortinu.
Þú getur pantað nýtt kort í leiðinni og þú lokar stolna kortinu. Nýja kortið verður strax sýnilegt í appinu og þaðan hægt að færa í símann og byrja að nota.
Ferð í "Kort", velur rétta kortið og þar í "punktana þrjá" og svo "Öryggi, vöktun og lokun". Eftir það fylgirðu ferlinu.
Það er líka velkomið að hafa samband við okkur í síma 410 5000 og við aðstoðum þig. Utan opnunartíma bankans er neyðarnúmer vegna Visakorta 525 2000.