Landsbankinn opnar gjaldeyrishraðbanka í öllum útibúum sínum á höfuðborgarsvæðinu
Gjaldeyrishraðbankar hafa verið teknir í notkun í útibúum Landsbankans í Austurstræti, Grafarholti, Borgartúni, Hafnarfirði, Mjódd, Hamraborg og Vesturbæ. Hægt er að taka út erlenda seðla í evrum, Bandaríkjadölum, sterlingspundum og dönskum krónum og nota til þess debet- og/eða kreditkort. Sama verðskrá gildir um úttektir úr gjaldeyrishraðbönkum eins og úr öðrum hraðbönkum og því er ódýrara að nota debetkort. Gjaldeyrishraðbankarnir eru aðgengilegur á opnunartíma útibúanna.
Sífellt fleiri viðskiptavinir nýta sér rafræna þjónustu eða sjálfsafgreiðslulausnir til að sinna sínum bankaviðskiptum. Með því að taka gjaldeyrishraðbankana í notkun vill Landsbankinn auðvelda viðskiptavinum sínum að nálgast erlendan gjaldeyri.