Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Árs­skýrsla Lands­bank­ans 2025 er kom­in út 

Ársskýrsla Landsbankans fyrir árið 2025 er komin út. Í ársskýrslunni er fjallað um helstu atriði í rekstri, nýjungar í þjónustu við fjölskyldur, einstaklinga og fyrirtæki, stöðuga framför í stafrænum lausnum og ýmislegt fleira. 
12. febrúar 2026

Ársskýrslan kemur samtímis út á íslensku og ensku. Uppgjör bankans vegna ársins 2025 var birt 29. janúar sl.  

Meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni: 

  • Góðan rekstrarárangur og tíðindamikið ár í erlendri fjármögnun. 
  • Nýjungar í Landsbankaappinu og splunkunýjan netbanka fyrirtækja.  
  • Þjónustu bankans við fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. 
  • Góðan árangur í færsluhirðingu og fyrirtækjaráðgjöf.  
  • Hvernig stærsta útibúanet landsins nýtist öllum viðskiptavinum bankans, óháð búsetu.  
  • Samþættingu tryggingaþjónustu við starfsemi bankans. 
  • Fjármálafræðslu bankans, styrki til samfélagslegra verkefna og víðtækt samstarf af ýmsum toga. 
  • Stærstu verkefnin á sviði upplýsingatækni. 
  • Fræðslu og varnir gegn netsvikum. 
  • Áherslur í þjónustu bankans á sviði eignastýringar og miðlunar. 
  • Trausta stöðu í lífeyrissparnaði og aukinn lífeyrissparnað yngra fólks.  

Sjálfbærni hluti af kjarnastarfsemi bankans 

Frá árinu 2012 hefur markvisst verið unnið að sjálfbærni í rekstri bankans og er sjálfbærni nú orðin hluti af kjarnastarfsemi bankans. Þá hefur orðið sú breyting að ítarlegt sjálfbærniuppgjör er nú gefið út með ársreikningi bankans en það var áður hluti af sérstakri sjálfbærniskýrslu. Þess vegna hefur ársskýrsla Landsbankans, sem til skamms tíma bar heitið árs- og sjálfbærniskýrsla, fengið aftur sitt fyrra heiti. Í ársskýrslunni er engu að síður líkt og fyrr ítarleg umfjöllun um sjálfbærni í rekstri bankans. 

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
11. feb. 2026
Landsbankinn gefur út AT1 verðbréf í íslenskum krónum
Landsbankinn lauk í dag útboði verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 (AT1)).
Austurbakki
29. jan. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2025
Hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38,0 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna árið áður.
Austurbakki
27. okt. 2025
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til sjö ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,625% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 122 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Austurbakki
23. okt. 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2025 nam 29,5 milljörðum króna eftir skatta, þar af 11,1 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 12,2% samanborið við 11,7% á sama tímabili árið áður. Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 2,9%.
17. júlí 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2025 nam 18,3 milljörðum króna eftir skatta, þar af 10,4 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 11,5% samanborið við 10,5% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
16. júní 2025
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljón evrur
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,50% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 135 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Austurbakki
30. apríl 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,2 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 10,0% samanborið við 9,3% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. mars 2025
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. mars 2025, samþykkti að greiða 18.892 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
5. mars 2025
Aðalfundur Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2025 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
28. feb. 2025
Landsbankinn og TM eru betri saman!
Uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fór fram í dag og hefur Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður rekið sem dótturfélag Landsbankans.