Stjórnendur
Stjórnendur
Í framkvæmdastjórn Landsbankans sitja bankastjóri og framkvæmdastjórar sviða bankans. Annað lykilstarfsfólk eru innri endurskoðandi og regluvörður.
Framkvæmdastjórn
Framkvæmdastjórn ber meginábyrgð á að framfylgja stefnu bankans - Landsbanki nýrra tíma. Kjarninn í stefnunni er gagnkvæmt traust og mannleg sýn á bankaviðskipti. Við ætlum að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð.

Lilja Björk Einarsdóttir, Bankastjóri
Lilja Björk Einarsdóttir er fædd árið 1973. Hún tók við starfi bankastjóra Landsbankans 14. mars 2017.
Lilja situr í stjórnum eftirfarandi samtaka: Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Viðskiptaráðs Íslands.
Á árunum 2008 til 2016 stýrði hún starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands (LBI ehf.) í London. Frá 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann hún hjá bandaríska ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005.
Lilja er véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistarapróf í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum.

Arinbjörn Ólafsson, Upplýsingatækni
Arinbjörn er fæddur árið 1975. Hann lauk M.Sc. prófi í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og doktorsgráðu í sömu grein frá Háskólanum í Wisconsin-Madison í Bandaríkjunum árið 2006.
Hann hóf störf á Verðbréfasviði Landsbankans árið 2006. Árin 2009-2015 vann hann að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og stýrði endurútreikningi gengistryggðra lána. Arinbjörn starfaði sem forstöðumaður Upplýsingatæknideildar hjá Landsbankanum frá árinu 2015 en tók við stöðu framkvæmdastjóra Upplýsingatæknisviðs í júlí 2017.

Árni Þór Þorbjörnsson, Fyrirtæki
Árni er fæddur árið 1970. Hann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með diplóma í rekstrar- og viðskiptafræði. Hann hlaut löggildingu í Corporate Finance frá Securities & Investment Institute í London árið 2005.
Hann starfaði í Landsbanka Íslands hf. frá árinu 1996. Á fyrstu árunum annaðist hann almenn lögfræðistörf, ráðgjöf og málflutning. Árni var yfirlögfræðingur Fyrirtækjasviðs Landsbanka Íslands hf. til ársins 2008, en við stofnun Landsbankans hf. tók Árni við sem framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs.

Bergsteinn Ó. Einarsson, Áhættustýring
Bergsteinn er fæddur árið 1981. Hann er með B.Sc.-próf í stærðfræði frá Háskóla Íslands.
Bergsteinn hóf störf sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Landsbankanum árið 2008 og hafði áður starfað við áhættustýringu hjá Kaupþingi á árunum 2005 til 2006. Hann hefur verið forstöðumaður hjá bankanum frá árinu 2012 og var staðgengill framkvæmdastjóra Áhættustýringar frá 2018. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra Áhættustýringar árið 2021.

Eyrún Anna Einarsdóttir, Eignastýring og miðlun
Eyrún er fædd árið 1980. Hún er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum.
Eyrún hóf störf hjá Landsbankanum árið 2006. Hún starfaði fyrst við Safnastýringu sem heyrði undir Eignastýringu bankans og stýrði þeirri einingu frá 2010 til 2012. Frá 2012 til 2021 var Eyrún forstöðumaður Viðskiptalausna sem er deild innan Eignastýringar og miðlunar. Eyrún tók við stöðu framkvæmdastjóra Eignastýringar og miðlunar árið 2021.

Helgi Teitur Helgason, Einstaklingar
Helgi Teitur er fæddur árið 1972. Hann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands.
Hann starfaði í Landsbanka Íslands hf. frá árinu 1998 til 2001, sem lögfræðingur og lögmaður og annaðist almenn lögfræðistörf, innheimtu, ráðgjöf og málflutning fyrir hönd bankans. Á árinu 2001 leiddi Helgi Teitur opnun skrifstofu Lögheimtunnar og Intrum á Akureyri og starfaði þar sem svæðisstjóri á Norðurlandi til ársins 2004, auk þess að veita sveitarfélögum og stéttarfélögum á Akureyri lögmannsþjónustu.
Frá árinu 2004 til 2010 var Helgi Teitur útibússtjóri Landsbankans á Akureyri. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra Einstaklingssviðs árið 2015.

Hreiðar Bjarnason, Fjármál
Hreiðar er fæddur árið 1973. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með M.Sc. gráðu í fjármálafræðum frá London Business School og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Hreiðar hóf störf í Landsbanka Íslands hf. árið 1998, fyrst sem sérfræðingur í Markaðsviðskiptum og síðar í Fjárstýringu. Hreiðar tók við sem framkvæmdastjóri Markaða og fjárstýringar Landsbankans hf. snemma árs 2010, en tók við stöðu sem framkvæmdastjóri Fjármála árið 2012 og er auk þess staðgengill bankastjóra.

Sara Pálsdóttir, Samskipti og menning
Sara er fædd árið 1983. Hún er með B.Sc. í viðskiptafræði, með áherslu á markaðsmál og ferðaþjónustu, frá Háskólanum á Akureyri og með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst.
Sara var sérfræðingur á markaðssviði Landsbankans í London á árunum 2007-2008 en hafði áður unnið hjá bankanum með námi. Hún hóf í kjölfarið störf hjá Reckitt Benckiser Healthcare í Bretlandi, sem er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði heilsu og hreinlætis, þar sem hún var sérfræðingur í markaðsgreiningu. Sara hóf störf hjá Eimskip árið 2011 og var forstöðumaður Innflutningsdeildar Eimskips frá 2017 til 2021 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum.
Regluvörður og innri endurskoðandi
Innri endurskoðun er sjálfstæð og óháð eftirlitseining sem er hluti af skipuriti samstæðunnar og innra eftirlitskerfi hennar. Innri endurskoðun heyrir undir bankaráð.
Regluvarsla er sjálfstæð eining sem heyrir undir bankastjóra. Regluvarsla hefur umsjón og eftirlit með því að Landsbankinn starfi í samræmi við innra og ytra regluverk ásamt því að sinna fræðslu og ráðgjöf um kröfur laga og reglna sem hafa áhrif á starfsemi bankans.

Þórður Örlygsson, innri endurskoðandi
Þórður er fæddur árið 1972. Hann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands.
Þórður starfaði hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Streng hf. á árunum 1998 til 2001. Hann vann við lögfræðiráðgjöf hjá Búnaðarbankanum, síðar Kaupþingi, á árunum 2001 til 2004. Þórður hefur starfað hjá Landsbankanum síðan 2004, fyrst sem sérfræðingur á Lögfræðisviði, en hann tók við starfi regluvarðar á árinu 2005. Þórður tók við starfi innri endurskoðanda árið 2023.

Sunna Ósk Friðbertsdóttir, regluvörður
Sunna er fædd árið 1985. Hún lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008 og ML-gráðu frá sama skóla árið 2010. Hún hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Hún hóf störf sem lögfræðingur hjá Landsbankanum árið 2010 og hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum í ýmsum deildum bankans, bæði varðandi innleiðingu löggjafar og daglega starfsemi bankans. Hún hefur starfað við regluvörslu hjá bankanum frá árinu 2017 og var staðgengill regluvarðar frá árinu 2022. Hún tók við starfi regluvarðar árið 2023.
Skipurit bankans
Svið bankans eru sjö: Einstaklingar, Fyrirtæki, Eignastýring og miðlun, Fjármál, Áhættustýring, Upplýsingatækni og Samskipti og menning. Bankastjóri og framkvæmdastjórar sviðanna skipa framkvæmdastjórn bankans.