Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Út­gáfa víkj­andi for­gangs­bréfa í sænsk­um krón­um

Austurbakki
15. júní 2026

Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 650 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin eru til fjögurra ára og með heimild til innköllunar að þremur árum liðnum (4NC3). Útgáfukjör miðast við 102 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku þeirra til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 25. júní 2026.

Umsjónaraðilar sölunnar voru DNB Carnegie og Nordea.