Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Út­gáfa víkj­andi for­gangs­bréfa í norsk­um krón­um

Austurbakki
16. júní 2026

Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 250 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru til sex ára og með heimild til innköllunar að fimm árum liðnum (6NC5). Útgáfukjör miðast við 125 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku þeirra til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 23. júní 2026.

Umsjónaraðili sölunnar var Nordea.