Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Til­kynn­ing um kaup Lands­bank­ans á eig­in hlut­um – lok end­ur­kaupa­tíma­bils 2022

Höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti
22. febrúar 2022

Þann 4. febrúar 2022 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á tímabilinu 7.febrúar 2022 til og með 21. febrúar 2022. Á endurkaupatímabilinu keypti Landsbankinn samtals 156.396 eigin hluti á genginu 11,9658, að kaupvirði 1.871.403 krónur.

Landsbankinn átti um 379 milljónir eigin hluti fyrir viðskiptin á endurkaupatímabilinu og að því loknu um 379 milljónir eigin hluti eða sem nemur um 1,58% af útgefnum hlutum í bankanum.

Endurkaup samkvæmt áætluninni gátu numið að hámarki samtals 57 milljónum hluta eða sem nam um 0,24% af útgefnu hlutafé.

Nánar um endurkaup