Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Til­kynn­ing um kaup Lands­bank­ans á eig­in hlut­um – lok end­ur­kaupa­tíma­bils 2021

16. nóvember 2021

Þann 29. október 2021 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á tímabilinu 1. nóvember 2021 til og með 15. nóvember 2021. Á endurkaupatímabilinu keypti Landsbankinn samtals 1.678.416 eigin hluti á genginu 11,6558, að kaupvirði 19.563.283 krónur.

Landsbankinn átti um 377 milljónir eigin hluti fyrir viðskiptin á endurkaupatímabilinu og að því loknu um 379 milljónir eigin hluti eða sem nemur um 1,58% af útgefnum hlutum í bankanum.

Endurkaup samkvæmt áætluninni gátu numið að hámarki samtals 57 milljónum hluta eða sem nam um 0,24% af útgefnu hlutafé.