Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

S&P hækk­ar láns­hæf­is­mat sér­tryggðra skulda­bréfa Lands­bank­ans í A+

Austurbakki
27. nóvember 2023

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag hækkun á lánshæfismati sértryggðra skuldabréfa útgefnum af Landsbankanum. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því A+ með stöðugum horfum.

Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar S&P á lánshæfismati íslenska ríkisins sem tilkynnt var um þann 10. nóvember.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans.