Niðurstöður endurkaupatilboðs
Landsbankinn hf. tilkynnti í dag um niðurstöður endurkaupatilboðs sem tilkynnt var þann 11. febrúar 2020 til eigenda skuldabréfa í flokki EUR 500.000.000 1,625% á gjalddaga árið 2021 (ISIN: XS1490640288) þar sem bankinn bauðst til að kaupa skuldabréfin til baka gegn greiðslu reiðufjár. Endurkaupatilboðið byggði á skilmálum endurkaupatilboðs (e. tender offer memorandum) dagsett 11. febrúar 2020.
19. febrúar 2020 - Landsbankinn
Bankanum bárust gild tilboð að fjárhæð EUR 360.200.000 og var gengið að tilboðum að fjárhæð EUR 300.000.000 með samþykktarhlutfallinu (e. pro rata scaling factor) 84,51927%.
Nánari upplýsingar um niðurstöður endurkaupatilboðs má finna í tilkynningu í írsku kauphöllinni (www.ise.ie) þar sem skuldabréfin eru skráð.