Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Nið­ur­stöð­ur að­al­fund­ar Lands­bank­ans 2026

Austurbakki
18. mars 2026

Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti 18. mars 2026 samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026.

Annars vegar voru samþykktar tvær reglulegar arðgreiðslur vegna reikningsársins 2025, samtals að fjárhæð 18,9 milljarðar króna, sem samsvarar um 50% af hagnaði ársins. Hins vegar var samþykkt sérstök arðgreiðsla að fjárhæð 16,1 milljarður króna. Gjalddagi fyrri reglulegu arðgreiðslunnar og sérstöku arðgreiðslunnar er 25. mars 2026. Seinni reglulega arðgreiðslan verður greidd 16. september 2026.

Á fundinum flutti Jón Þorvarður Sigurgeirsson, formaður bankaráðs, skýrslu bankaráðs fyrir árið 2025 og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans. Ávarp Jóns er aðgengilegt á vef bankans.

Ársreikningur bankans fyrir árið 2025 var samþykktur sem og tillögur um starfskjarastefnu, þóknun bankaráðsmanna og heimild til kaupa á eigin hlutum. Þá var samþykkt tillaga um að bankaráð skuli skipað fimm bankaráðsmönnum í stað sjö.

Eftirtaldir voru kjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar:

Aðalmenn

  • Jón Þorvarður Sigurgeirsson (formaður)
  • Eva Halldórsdóttir
  • Rebekka Jóelsdóttir
  • Þór Hauksson
  • Örn Guðmundsson

Varamenn

  • Kristján Þ. Davíðsson
  • Stefanía G. Halldórsdóttir

Jón Þorvarður Sigurgeirsson var kjörinn formaður bankaráðs.

Hjörleifur Pálsson var kjörinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd félagsins. Ríkisendurskoðandi var kjörinn endurskoðandi félagsins fyrir rekstrarárið 2026. Í samræmi við heimildir ríkisendurskoðanda til að útvista verkefnum sínum hefur hann tilnefnt í framhaldi af útboði um verkefnið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers ehf. til að annast endurskoðun ársreikninga 2026.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
16. mars 2026
Lok endurkaupatímabils 2026
Þann 25. febrúar 2026 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stóð frá og með 2. mars 2026 til og með 13. mars 2026.
Austurbakki
4. mars 2026
Aðalfundur Landsbankans 2026
Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
25. feb. 2026
Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum
Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til endurkaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans þann 19. mars 2025. Endurkaupin munu nema að hámarki 48 milljónum hluta eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar og mars 2024.
12. feb. 2026
Ársskýrsla Landsbankans 2025 er komin út 
Ársskýrsla Landsbankans fyrir árið 2025 er komin út. Í ársskýrslunni er fjallað um helstu atriði í rekstri, nýjungar í þjónustu við fjölskyldur, einstaklinga og fyrirtæki, stöðuga framför í stafrænum lausnum og ýmislegt fleira. 
Austurbakki
11. feb. 2026
Landsbankinn gefur út AT1 verðbréf í íslenskum krónum
Landsbankinn lauk í dag útboði verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 (AT1)).
Austurbakki
29. jan. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2025
Hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38,0 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna árið áður.
Austurbakki
27. okt. 2025
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til sjö ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,625% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 122 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Austurbakki
23. okt. 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2025 nam 29,5 milljörðum króna eftir skatta, þar af 11,1 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 12,2% samanborið við 11,7% á sama tímabili árið áður. Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna nam 2,9%.
17. júlí 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2025 nam 18,3 milljörðum króna eftir skatta, þar af 10,4 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 11,5% samanborið við 10,5% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
16. júní 2025
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljón evrur
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,50% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 135 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.