Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Moo­dy’s veit­ir Lands­bank­an­um láns­hæf­is­mat í fyrsta sinn

Austurbakki
3. september 2026

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s Ratings veitti Landsbankanum í dag lánshæfismat sem útgefanda og vörsluaðila innlána og er matið A2/P-1 með stöðugum horfum.

Lánshæfismatið endurspeglar sterkt lánstraust bankans sem byggist á grunnmati lánshæfis (e. baseline credit assessment, BCA) og væntingum um afar lítið tap að gefnum vanefndum (e. extremely low loss given failure) sem leiðir til þriggja þrepa hækkunar í mati Moody’s á tapsáhættu (e. loss given failure, LGF).

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Við erum mjög ánægð með þann árangur sem náðst hefur í Landsbankanum og að hann skili sér í sterku lánshæfi frá Moody’s Ratings. Sérstaklega er ánægjulegt að Landsbankinn sé metinn fremstur íslenskra banka þegar kemur að fjárhagslegum styrk. Rekstur bankans er traustur og stöðugur, fjárhagsstaðan sterk og við höfum á sama tíma haldið áfram að þróa þjónustuna og styrkja tengslin við viðskiptavini.

Undanfarin ár höfum við unnið markvisst að því að auka fjölbreytni og hagkvæmni í fjármagnsskipan bankans og sú vinna er nú að skila sér. Lánshæfismatið A2 styrkir stöðu Landsbankans á fjármagnsmörkuðum og opnar aðgang að stærri hópi fjárfesta. Til lengri tíma skapar það tækifæri til hagstæðari fjármögnunar og eflir getu okkar til að bjóða viðskiptavinum góð og samkeppnishæf kjör.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
23. júlí 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2026 nam 22,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 18,3 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 11 milljarðar króna.
Austurbakki
16. júní 2026
Útgáfa víkjandi forgangsbréfa í norskum krónum
Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 250 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru til sex ára og með heimild til innköllunar að fimm árum liðnum (6NC5). Útgáfukjör miðast við 125 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.
Austurbakki
15. júní 2026
Útgáfa víkjandi forgangsbréfa í sænskum krónum
Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 650 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin eru til fjögurra ára og með heimild til innköllunar að þremur árum liðnum (4NC3). Útgáfukjör miðast við 102 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
20. maí 2026
Landsbankinn gerist hluthafi í útgefanda stöðugleikamyntar í evrum
Landsbankinn hefur gerst hluthafi í Qivalis, félags í eigu 37 leiðandi fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum, og tekur þannig þátt í að þróa stöðugleikamynt í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað.
Austurbakki
5. maí 2026
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 4,0% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 110 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Austurbakki
30. apríl 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 nam 11,2 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,9 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 13,5% samanborið við 10,0% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
18. mars 2026
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2026
Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti 18. mars 2026 samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026.
Austurbakki
16. mars 2026
Lok endurkaupatímabils 2026
Þann 25. febrúar 2026 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stóð frá og með 2. mars 2026 til og með 13. mars 2026.
Austurbakki
4. mars 2026
Aðalfundur Landsbankans 2026
Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
25. feb. 2026
Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum
Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til endurkaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans þann 19. mars 2025. Endurkaupin munu nema að hámarki 48 milljónum hluta eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar og mars 2024.