Lands­bank­inn nýt­ir heim­ild til kaupa á eig­in hlut­um - nóv­em­ber 2021

29. október 2021

Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 24. mars 2021. Samkvæmt endurkaupaáætluninni munu kaupin nema að hámarki 57 milljónum hluta eða sem nemur 0,24% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í ágúst 2021.

Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stendur frá og með 1. nóvember 2021 til og með 15. nóvember 2021.

Þeir hluthafar sem ákveða að taka boði bankans skulu fylla út tilkynningu þar að lútandi og senda bankanum. Eyðublað fyrir tilkynninguna er aðgengilegt á vef bankans. Tilkynningar verða afgreiddar á tímabilinu í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til hámarkinu (57 milljónum hluta) er náð. Verði hámarkinu náð á endurkaupatímabilinu verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.

Í samræmi við ákvörðun aðalfundar býðst Landsbankinn til að kaupa hvern hlut á endurkaupatímabilinu á gengi sem samsvarar hlutfallinu á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár bankans, samkvæmt síðasta birta uppgjöri áður en endurkaupatímabilið hefst.

Samkvæmt árshlutauppgjöri Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2021 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 275.343 milljónir króna og útistandandi hlutir 23.623 milljónir. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 11,6558 á endurkaupatímabilinu.

Heildarfjöldi hluta í bankanum er 24.000 milljónir hluta. Fjöldi hluthafa í bankanum er 869. Ríkissjóður á um 23.567 milljónir hluta eða um 98,2% af útgefnum hlutum. Bankinn á um 377 milljónir eigin hluti eða um 1,57% af útgefnu hlutafé. Aðrir hluthafar en ríkissjóður og bankinn eiga um 56 milljónir hluta eða um 0,23% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir hluthafa sem vilja nýta sér boð bankans er að finna á www.landsbankinn.is/endurkaup. Þá verða upplýsingar veittar í síma 410 4040 og þú getur einnig sent tölvupóst á vl@landsbankinn.is.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
27. nóv. 2023
S&P hækkar lánshæfismat sértryggðra skuldabréfa Landsbankans í A+
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag hækkun á lánshæfismati sértryggðra skuldabréfa útgefnum af Landsbankanum. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því A+ með stöðugum horfum.
Austurbakki
18. nóv. 2023
S&P breytir horfum lánshæfismats úr stöðugum í jákvæðar
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti þann 17. nóvember 2023 um breytingu á horfum lánshæfismats Landsbankans úr stöðugum í jákvæðar og er lánshæfismat bankans því BBB/A-2 með jákvæðum horfum.
Austurbakki
26. okt. 2023
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023  
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 22,4 milljarðar króna, þar af 7,9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár á fyrstu níu mánuðum ársins var 10,5% en var 10,9% á þriðja ársfjórðungi.
5. sept. 2023
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra og er um að ræða þriðju grænu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum. Skuldabréfin bera 6,375% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 313 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Skuldabréfin eru gefin út til 3,5 ára með lokagjalddaga í mars 2027.
Austurbakki
20. júlí 2023
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2023
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins var 14,5 milljarðar króna, þar af 6,7 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár á fyrri helmingi ársins var 10,3%.
Austurbakki
4. maí 2023
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2023
Arðsemi eiginfjár Landsbankans var 11,1% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023. Hagnaður var 7,8 milljarðar króna.
Austurbakki
23. mars 2023
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2023
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 23. mars 2023, samþykkti að greiða 8.504 milljónir króna í arð til hluthafa. Þá samþykkti fundurinn að breyta heimilisfangi bankans úr Austurstræti 11 í Reykjastræti 6.
New temp image
9. mars 2023
Landsbankinn selur evrópsk sértryggð skuldabréf (úrvals) í evrum
Sölu Landsbankans á evrópskum sértryggðum skuldabréfum (úrvals) í evrum lauk í dag. Skuldabréfin eru að fjárhæð 300 milljónir evra, til fimm ára og bera 4,25% fasta vexti. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 90 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Hestar og kona
16. feb. 2023
Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans komin út
Í árs- og sjálfbærniskýrslu Landsbankans fyrir árið 2022 er fjallað um það sem hæst bar í rekstri bankans á árinu, nýjungar og breytingar á þjónustu, áframhaldandi sjálfbærnivinnu, fjármögnun, áhættustjórnun og ýmislegt fleira.
2. feb. 2023
Ítarlegar upplýsingar um sjálfbærni og starfsemi Landsbankans
Í tengslum við ársuppgjör bankans birtum við í dag ítarlegar upplýsingar um sjálfbærni og starfsemi Landsbankans. Upplýsingarnar eru endurskoðaðar að hluta eða öllu leyti af endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur