Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­bank­inn ger­ist hlut­hafi í út­gef­anda stöð­ug­leika­mynt­ar í evr­um

20. maí 2026

Landsbankinn hefur gerst hluthafi í Qivalis, félags í eigu 37 leiðandi fjármálafyrirtækja frá 15 Evrópulöndum, og tekur þannig þátt í að þróa stöðugleikamynt í evru fyrir evrópskan fjármálamarkað.

Stöðugleikamynt eða fastgengismynt er sýndareign í formi rafeyris sem er bundinn við gengi hefðbundinnar myntar. Lausnin sem Qivalis vinnur að verður að fullu studd með varasjóðstryggingu á móti hverri útgefinni sýndareiningu. Ein stafræn evra mun jafngilda einni evru. Stöðugleikamyntin mun lúta eftirliti hollenska seðlabankans. Hluthafar eiga allir jafnan hlut og eykur samstarfið slagkraft evrópskra fjármálafyrirtækja í útgáfu sýndareigna í evrum.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir: „Með þátttöku sinni verður Landsbankinn hluti af víðtæku samstarfi leiðandi evrópskra banka sem miðar að því að þróa framtíðarinnviði fjármálakerfisins með áherslu á öryggi, gagnsæi og skilvirkni í stafrænum greiðslum. Það er mikilvægt fyrir Landsbankann að móta og nýta þær tækninýjungar sem við teljum að geti einfaldað viðskiptavinum lífið.“

Markmið verkefnisins er að byggja upp örugga, evrópska innviði fyrir stafrænar greiðslur og uppgjör sem samræmast regluverki Evrópusambandsins, þar á meðal MiCA-regluverkinu um markaði fyrir sýndareignir.

Qivalis var stofnað árið 2025 og hefur aðsetur í Amsterdam. Verkefnið er nú í leyfisferli hjá hollenska seðlabankanum og er stefnt að því að lausnin verði tilbúin á síðari hluta árs 2026. Landsbankinn gerist nú hluthafi með þátttöku í hlutafjáraukningu félagsins. Meðal annarra þátttakenda í samstarfinu eru ABN AMRO, BBVA, BNP Paribas, Nordea, Rabobank, SEB, Swedbank, Danske Bank og UniCredit.

Nánar um Qivalis

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
16. júní 2026
Útgáfa víkjandi forgangsbréfa í norskum krónum
Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 250 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru til sex ára og með heimild til innköllunar að fimm árum liðnum (6NC5). Útgáfukjör miðast við 125 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í norskum krónum.
Austurbakki
15. júní 2026
Útgáfa víkjandi forgangsbréfa í sænskum krónum
Landsbankinn lauk í dag sölu á víkjandi forgangsbréfum (e. senior non-preferred bond) með breytilegum vöxtum að fjárhæð 650 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin eru til fjögurra ára og með heimild til innköllunar að þremur árum liðnum (4NC3). Útgáfukjör miðast við 102 punkta álag á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.
Austurbakki
5. maí 2026
Landsbankinn gefur út græn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra
Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 4,0% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 110 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
Austurbakki
30. apríl 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 nam 11,2 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,9 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 13,5% samanborið við 10,0% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
18. mars 2026
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2026
Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti 18. mars 2026 samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026.
Austurbakki
16. mars 2026
Lok endurkaupatímabils 2026
Þann 25. febrúar 2026 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stóð frá og með 2. mars 2026 til og með 13. mars 2026.
Austurbakki
4. mars 2026
Aðalfundur Landsbankans 2026
Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
25. feb. 2026
Landsbankinn nýtir heimild til kaupa á eigin hlutum
Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að nýta heimild til endurkaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans þann 19. mars 2025. Endurkaupin munu nema að hámarki 48 milljónum hluta eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn hefur áður gefið hluthöfum kost á að selja hluti sína í bankanum, síðast í febrúar og mars 2024.
12. feb. 2026
Ársskýrsla Landsbankans 2025 er komin út 
Ársskýrsla Landsbankans fyrir árið 2025 er komin út. Í ársskýrslunni er fjallað um helstu atriði í rekstri, nýjungar í þjónustu við fjölskyldur, einstaklinga og fyrirtæki, stöðuga framför í stafrænum lausnum og ýmislegt fleira. 
Austurbakki
11. feb. 2026
Landsbankinn gefur út AT1 verðbréf í íslenskum krónum
Landsbankinn lauk í dag útboði verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 (AT1)).