Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­bank­inn gef­ur út græn skulda­bréf fyr­ir 300 millj­ón­ir evra

Austurbakki
5. maí 2026

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 4,0% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 110 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

Endanleg eftirspurn nam rúmlega 1.650 milljónum evra frá yfir 100 fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 12. maí 2026.

Umsjónaraðilar voru Barclays, BofA Securities, Citi og J.P. Morgan