Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­bank­inn gef­ur út græn skulda­bréf fyr­ir 300 millj­ón­ir evra

5. september 2023

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum að fjárhæð 300 milljónir evra og er um að ræða þriðju grænu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum. Skuldabréfin bera 6,375% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 313 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Skuldabréfin eru gefin út til 3,5 ára með lokagjalddaga í mars 2027.

Heildareftirspurn nam yfir 1.500 milljónum evra frá meira en 140 fjárfestum frá meginlandi Evrópu, Bretlandi og Norðurlöndunum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta í írsku kauphöllinni 12. september 2023.

Umsjónaraðilar með útgáfunni voru BofA Securities, Citi, Deutsche Bank og Morgan Stanley.