Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­bank­inn gef­ur út AT1 verð­bréf í ís­lensk­um krón­um

Austurbakki
11. febrúar 2026

Landsbankinn lauk í dag útboði verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 (AT1)).

Boðinn var til sölu nýr óverðtryggður flokkur í íslenskum krónum, LBANK AT1 PNC31. Verðbréfin eru án lokagjalddaga en valkvæður innköllunardagur bréfanna er að 5,5 árum liðnum. Verðbréfin bera fasta 10,00% vexti sem greiðast hálfsárslega og jafngilda 10,25% ávöxtun á ársgrundvelli.

Í heild bárust 54 tilboð að fjárhæð 89,32 milljarðar króna frá íslenskum fagfjárfestum og voru tilboð að fjárhæð 16 milljarðar króna samþykkt í útboðinu.

Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Landsbankinn réðst í útgáfu AT1 verðbréfa í íslenskum krónum í kjölfar vel heppnaðrar sambærilegrar útgáfu í Bandaríkjadölum í fyrra, með það að leiðarljósi að breikka fjármögnunargrunn bankans á innlendum markaði. Það er mjög ánægjulegt að sjá góða þátttöku fjárfesta í útboðinu sem endurspeglar tiltrú á Landsbankanum sem fjárfestingarkosti.“ 

Vænt lánshæfismat AT1 verðbréfanna er BB frá S&P Global Ratings. Stefnt er að því að verðbréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland og Euronext Dublin þann 18. febrúar 2026.

Morgan Stanley er umsjónaraðili útgáfunnar og Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu.