Eyrún verð­ur fram­kvæmda­stjóri Eign­a­stýr­ing­ar og miðl­un­ar

Eyrún Anna Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum.
6. október 2021 - Landsbankinn

Eyrún hóf störf hjá Landsbankanum árið 2006. Hún starfaði fyrst við Safnastýringu sem heyrði undir Eignastýringu bankans og stýrði þeirri einingu frá 2010 til 2012. Undanfarin níu ár hefur Eyrún verið forstöðumaður Viðskiptalausna Eignastýringar og miðlunar þar sem hún hefur verið ábyrg fyrir árangursviðmiðum, áætlanagerð og þróun, sem og flestum breytingum og rekstrarmálum sviðsins. Hún hefur leitt innleiðingu á mörgum stærri verkefnum bankans á sviði verðbréfaviðskipta, ásamt því að vera vörustjóri fyrir sparnað og ávöxtun hjá bankanum. Eyrún er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum. Hún tekur strax við starfinu.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, segir:

„Eyrún er reynslumikill stjórnandi sem hefur starfað lengi á markaðnum og þekkir vel þær daglegu áskoranir sem viðskiptavinir standa frammi fyrir. Eignastýring og miðlun snýst um traust og við leggjum áherslu á langtíma viðskiptasambönd. Eyrún hefur sýnt og sannað að hún er öflugur leiðtogi og hefur sterka sýn á það hvernig Landsbankinn getur skarað fram úr í þjónustu við viðskiptavini. Hún sér hvar tækifæri bankans liggja við að móta nýja tíma í fjármálaþjónustu, auka ánægju viðskiptavina og skila góðri afkomu fyrir bankann.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
23. okt. 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 nam 26,9 milljörðum króna eftir skatta, þar af 10,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 11,7% samanborið við 10,5% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
10. sept. 2024
Landsbankinn gefur út víkjandi forgangsbréf í sænskum og norskum krónum
Landsbankinn hefur lokið sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum að fjárhæð 1.000 milljónir sænskra króna og 250 milljónir norskra króna. Skuldabréfin eru til fjögurra ára og með heimild til innköllunar að þremur árum liðnum.
Austurbakki
18. júlí 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2024 nam 16,1 milljarði króna eftir skatta, þar af 9,0 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 10,5% samanborið við 10,3% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
7. júní 2024
S&P segir kaup Landsbankans á TM fjölga tekjustoðum og hafa hófleg áhrif á eiginfjárstöðu
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) telur að kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. (TM) skapi tækifæri fyrir bankann til að festa sig í sessi á íslenskum tryggingamarkaði, breikka þjónustuframboð til viðskiptavina og auka fjölbreytni í tekjustoðum bankans til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem S&P birti 5. júní 2024.
Austurbakki
30. maí 2024
Samningur um kaup Landsbankans á TM undirritaður
Samningur um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka var undirritaður í dag.
Austurbakki
2. maí 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. apríl 2024
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. apríl 2024, samþykkti að greiða 16.535 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
4. apríl 2024
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í BBB+
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði hækkað lánshæfismat Landsbankans. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því BBB+ með stöðugum horfum.
Austurbakki
27. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024 - fundarboð
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
22. mars 2024
Bankasýslan var upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM
Bankaráð Landsbankans hefur svarað bréfi Bankasýslu ríkisins frá 18. mars sl. þar sem óskað er eftir tilteknum upplýsingum um kaup bankans á TM tryggingum.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur