Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Að­al­fund­ur Lands­bank­ans 2026

Austurbakki
4. mars 2026

Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.

Dagskrá

  1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
  2. Skýrsla bankastjóra.
  3. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  4. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári.
  5. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  6. Tillögur til breytinga á samþykktum. Lagt er til að samþykktum fyrir Landsbankann hf. verði breytt þannig að bankaráð skuli skipað fimm aðalmönnum í stað sjö. Nánar tiltekið er lagt til að 1. málsliður 1. mgr. 18. gr. samþykktanna orðist svo: „Bankaráð skal skipað fimm mönnum og tveimur til vara.“
  7. Kosning bankaráðs.
  8. Tilnefning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd.
  9. Kosning endurskoðanda.
  10. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  11. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
  12. Önnur mál.

Þeir hluthafar sem óska eftir að fylgjast með streymi af fundinum vinsamlegast sendið beiðni um aðgang með upplýsingum um kennitölu á netfangið adalfundur@landsbankinn.is.