Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Að­al­fund­ur Lands­bank­ans 2024

Austurbakki
7. mars 2024

Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.

Dagskrá

  1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
  2. Skýrsla bankastjóra.
  3. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  4. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári.
  5. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  6. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef borist hafa.
  7. Kosning bankaráðs.
  8. Tilnefning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd.
  9. Kosning endurskoðanda.
  10. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  11. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
  12. Önnur mál.

Hluthafar sem vilja fylgjast með streymi frá fundinum geta óskað eftir aðgangi með því að senda beiðni þess efnis með nafni og kennitölu á netfangið adalfundur@landsbankinn.is.

Nánari upplýsingar um fundinn

Árs- og sjálfbærniskýrsla 2023