Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning?
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.