Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Við­brögð við tjóni

Hvað eru rétt við­brögð við tjóni?

Viðeigandi viðbrögð eru mismunandi eftir alvarleika og eðli tjónsins. Hér er yfirlit yfir helstu samskiptaleiðir bestu viðbrögð í ákveðnum tilfellum.

Upplýsingar um afgreiðslutíma

Ökutækjatjón

Ökutækjatjón geta verið ýmiss konar. Ef um slys á fólki eða tjón vegna lögbrots er að ræða skal alltaf hringja í 112.

Hvað skal gera?

  • Veldu milli þess að hringja í 112 (ef það á við) eða að fylla út tjónaskýrslu á staðnum.
  • Á virkum dögum á milli kl. 07.45–18.30 getur þú fengið aðstoð við að fylla út tjónaskýrslu frá Aðstoð & Öryggi í síma 578 9090. Sú þjónusta er ókeypis.
  • Sé ekki um neyðartilvik að ræða má tilkynna tjónið með viðeigandi tjónstilkynningu.
  • Ef það á við finnur þú viðurkennt verkstæði á vefnum okkar til að láta gera við bílinn.

Eignatjón

Hvað skal gera?

  • Ef um neyðartilvik vegna eignatjóns er að ræða skal hringja í neyðarvakt TM í síma 800 6700.
  • Sé um tjón vegna lögbrots að ræða, t.d. innbrot, skal samstundis kalla til lögreglu.
  • Sé ekki um neyðartilvik að ræða má tilkynna tjónið með viðeigandi tjónstilkynningu.

Ferðatjón

Hvað skal gera?

  • Ef um neyðartilvik er að ræða vegna slysa eða sjúkdóma erlendis skaltu hafa samband við neyðarþjónustu SOS International í síma +45 38 48 88 00 eða með rafrænum hætti.
  • Sé um tjón vegna lögbrots að ræða, t.d. innbrot, þjófnað eða rán, skal samstundis kalla til lögreglu.
  • Sé ekki um neyðartilvik að ræða má tilkynna tjónið með viðeigandi tjónstilkynningu.

Önnur tjón

Hvað skal gera?

  • Ef tjón verður á innbúi í innbúskaskó skal tilkynna það í gegnum TM appið. Önnur tjón má tilkynna með viðeigandi tjónstilkynningu.

Fróðleikur tengdur tjónum

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.