Á þeim stað sem tilgreindur er í skírteini.
Brunatrygging lausafjár
Brunatrygging lausafjár
Tryggðu lausafé gagnvart bruna, náttúruhamförum og fleiri þáttum sem þú getur bætt við.
Brunatrygging lausafjár tryggir þig gagnvart bruna og náttúruhamförum en einnig er hægt að kaupa viðbót þar sem bætt eru tjón vegna vatns, innbrota eða foks.
Tryggingin hentar vel fyrir innbú sem þú þarft að tryggja sérstaklega eða ef þú átt innbú í húsnæði sem þú býrð ekki í að staðaldri og heimatrygging hentar ekki.
- Dæmi um það sem tryggt er með þessari tryggingu er almennt innbú, innbú í geymslu, innbú í hesthúsi, listaverk, skartgripir, hljóðfæri, heitur pottur og skjólpallur eða -girðing.
Hvað bætir tryggingin?
- Eldsvoði.
- Eldingar.
- Sprenging.
- Hrap, þ.e. tjón af völdum loftfars eða hluta sem falla úr loftfari.
- Skyndilegt sótfall.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Hlutir sem sviðna, ofhitna eða bráðna þegar ekki er um eldsvoða að ræða.
- Skammhlaup eða önnur hrein rafmagnsfyrirbæri sem valda skemmdum á raftækjum eða rafeindatækjum.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingin tekur ekki til rekstrartaps eða óbeins taps.
- Tryggingin tekur ekki til lausafjár sem fellur undir lögboðna brunatryggingu húseignar.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
