- Almennt gildir tryggingin á Íslandi og á ferðalögum hvar sem er í heiminum í 92 daga.
- Ábyrgðartryggingin gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópu í 92 daga.
Heimatrygging 4
Heimatrygging 4
Ein víðtækasta og besta alhliða heimilistryggingin sem völ er á með bótafjárhæðum eins og þær gerast hæstar.
Heimatrygging 4 býður upp á allt hið sama og Heimatrygging 3 en bótafjárhæðirnar eru enn hærri og við bætist sjúkrahúslegutrygging og umönnunarbætur sem standa ekki til boða í öðrum heimatryggingum.
- Tryggingin er víðtækasta heimatryggingin sem við bjóðum.
- Tryggingavernd m.a. á innbúi.
- Tryggir fjölskylduna fyrir slysum í frítíma.
Innifalið í Heimatryggingu 4

Slysatrygging í frítíma
Tryggingin greiðir bætur vegna slysa í frítíma, við heimilisstörf og við skólanám.

Greiðslukortatrygging
Tryggingin bætir tjón sem hlýst af tapi á greiðslukorti og sviksamlegri notkun óviðkomandi aðila á því. Tryggingin gildir jafnt á Íslandi sem og á ferðalögum erlendis.

Málskostnaðartrygging
Trygginging greiðir málskostnað vegna ágreinings í einkamálum þegar óskað hefur verið eftir aðstoð lögmanns.

Ábyrgðartrygging
Greiðir bætur ef sá tryggði er bótaskyldur. Samkvæmt íslenskum lögum bera einstaklingar bótaábyrgð á tjóni sem þeir valda öðrum vegna mistaka eða vanrækslu.

Áfallahjálp
Sálfræðilegur stuðningur við einstaklinga eða hópa sem fundið hafa fyrir sterkri vanlíðan eða ótta vegna tjónsatviks og sem líklegt er að verði erfitt að vinna úr án aðstoðar.

Umönnunartrygging barna
Greiddar eru bætur fyrir barn tryggingartaka 15 ára og yngra ef barnið þarf að dvelja á sjúkrahúsi lengur en þann tíma sem tilgreindur er í skilmálum.

Sjúkrahúslegutrygging
Greiddar eru bætur að tiltekinni fjárhæð fyrir hvern sólarhring umfram fimm sólahringa sem hinn tryggði verður að dvelja samfellt á sjúkrahúsi vegna sjúkdóms eða slyss.
Þú getur bætt við
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
Hámark á bótafjárhæðum í innbústryggingu:
- Skartgripir og úr eru að hámarki 5% af innbúsverðmæti.
- Peningar, verðbréf, handrit, frumteikningar, mynt- og frímerkjasöfn eru að hámarki 1% af innbúsverðmæti hver liður.
- Reiðhjól eru bætt að hámarki 250.000 kr.
- Verkfæri, varahlutir og áhöld eru að hámarki 5% af innbúsverðmæti.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

