- Almennt gildir tryggingin á Íslandi og á ferðalögum hvar sem er í heiminum í 92 daga.
- Ábyrgðartryggingin gildir á Íslandi og á ferðalagi innan Evrópu í 92 daga.
Heimatrygging 1
Heimatrygging 1
Góður grunnur fyrir þau sem vilja innbústryggingu en ekki frítímaslysatryggingu.
Heimatrygging 1 er góður kostur fyrir þau sem vilja vera með góða grunninnbústryggingu og ábyrgðartryggingu en leitast ekki eftir frítímaslysatryggingu.
- Hentar vel fyrir þau sem búa ein og vilja lágmarksvernd.
Innifalið í Heimatryggingu 1

Ábyrgðartrygging
Greiðir bætur ef sá tryggði er bótaskyldur. Samkvæmt íslenskum lögum bera einstaklingar bótaábyrgð á tjóni sem þeir valda öðrum vegna mistaka eða vanrækslu.

Áfallahjálp
Sálfræðilegur stuðningur við einstaklinga eða hópa sem fundið hafa fyrir sterkri vanlíðan eða ótta vegna tjónsatviks og sem líklegt er að verði erfitt að vinna úr án aðstoðar.
Þú getur bætt við
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
Hámark á bótafjárhæðum í innbústryggingu:
- Skartgripir og úr eru að hámarki 5% af innbúsverðmæti.
- Peningar, verðbréf, handrit, frumteikningar, mynt- og frímerkjasöfn eru að hámarki 1% af innbúsverðmæti hver liður.
- Reiðhjól eru bætt að hámarki 150.000 kr.
- Verkfæri, varahlutir og áhöld eru að hámarki 5% af innbúsverðmæti.
- Ákveðnir munir, s.s. fatnaður og rafmagnstæki, afskrifast samkvæmt reglum sem finna má í skilmálum tryggingarinnar.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

