Á Íslandi.
Hestatrygging
Hestatrygging
Hestatrygging bætir þér kostnað vegna skoðunar eða meðferðar dýralækna á hestinum þínum. Þú setur trygginguna saman úr þáttum á borð við líf- og heilsutryggingu, ábyrgðartryggingu, sjúkrakostnaðartryggingu og takmarkaða líftryggingu, allt eftir því hvað hentar þér best.
Tryggingin tekur einnig á tjóni sem hesturinn þinn getur valdið.
- Allir hlutar tryggingarinnar eru valkvæðir.
- Tryggingin gildir hvort sem er við útreiðar, í hagagöngu, við flutning eða þegar hesturinn er á húsi.
- Með hestatryggingu færðu 20% afslátt af Helite öryggisvestum hjá Brokk.
Hvað bætir tryggingin?
- Læknis- og lyfjakostnað vegna slysa og sjúkdóma hestsins.
- Tannviðgerðir vegna slysa.
- Dánarbætur ef hesturinn deyr.
- Bætur greiðast þegar hesturinn missir til frambúðar heilsu sína og getur ekki sinnt því náttúrulega eða þjálfaða notagildi sem sérstaklega hefur verið tryggt.
- Skaðabætur vegna bótaábyrgðar sem fellur á þig sem eiganda hestsins vegna líkamstjóns eða skemmda á munum.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Kostnaður vegna geldinga, ófrjósemisaðgerða eða almennra fæðinga afkvæma.
- Meðfæddir og arfgengir kvillar eða sjúkdómar.
- Heilsutrygging greiðir ekki bætur vegna aldurstengdra sjúkdóma eða hrörnunarsjúkdóma.
- Skaðabætur þegar fjölskylda og skyldulið á heimili hins tryggða verða fyrir tjóni.
- Tjón sem rekja má til þess að ekki er farið eftir lögum og reglum um lausagöngu dýra, merkingar þeirra eða öðrum settum reglum.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Bætur greiðast ekki umfram markaðsvirði hestsins á Íslandi.
- Veðhafar og aðrir sem njóta óbeinna eignaréttinda njóta ekki tryggingaverndar nema sérstaklega um það sé samið.
- Ekki er hægt að vera með bæði líf- og heilsutryggingu og takmarkaða líftryggingu vegna sama hests.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Hvernig sæki ég um hestatryggingu?
Fylla þarf út umsókn og heilbrigðisvottorð þarf að fylgja með ef sótt er um sjúkrakostnaðartryggingu eða líf- og heilsutryggingu.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
