Á Íslandi.
Gæludýratrygging
Gæludýratrygging
Gæludýratryggingin skiptist í líf- og heilsutryggingu, ábyrgðartryggingu, sjúkrakostnaðartryggingu og gæslutryggingu. Þú getur sniðið trygginguna að gæludýrinu og þínum þörfum. Sjúkrakostnaðartrygging er algengasta valið.
- Þegar um hreinræktað dýr er að ræða er líftryggingu oftast bætt við og það sama á við um dýr með náttúrulegt eða þjálfað notagildi.
- Ábyrgðartrygging er innifalin í leyfisgjöldum sumra sveitarfélaga og þá er óþarfi að kaupa hana sérstaklega.
Hvað bætir tryggingin?
- Læknis- og lyfjakostnað vegna slysa og sjúkdóma hjá gæludýrum.
- Tannviðgerðir vegna slysa.
- Dánarbætur ef dýrið deyr.
- Bætur greiðast þegar dýrið missir til frambúðar heilsu sína og getur ekki sinnt því náttúrulega eða þjálfaða notagildi sem sérstaklega hefur verið tryggt.
- Skaðabætur vegna bótaábyrgðar sem fellur á þig sem eiganda gæludýrsins vegna líkamstjóns eða skemmda á munum.
- Kostnað vegna vistunar og gæslu gæludýrs á viðurkenndu dýrahóteli ef umsjónarmaður gæludýrsins þarf óvænt að dvelja á sjúkrahúsi.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Kostnað vegna geldingar dýra, ófrjósemisaðgerða eða almennra fæðinga afkvæma.
- Meðfædda og arfgenga kvilla eða sjúkdóma.
- Kostnað sem hlýst við dauða eða aflífun dýrs.
- Heilsutrygging greiðir ekki bætur vegna aldurstengdra sjúkdóma eða hrörnunarsjúkdóma.
- Skaðabætur þegar fjölskylda og skyldulið á heimili gæludýrsins verða fyrir tjóni.
- Tjón sem rekja má til þess að ekki er farið eftir lögum og reglum um t.d. dýrahald.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Ekki er hægt að tryggja gæludýr eftir að þau hafa náð fimm ára aldri.
- Hægt er að tryggja hunda þegar þeir hafa náð fjögurra vikna aldri og ketti þegar þeir hafa náð sex vikna aldri.
- Tryggingin gildir ekki á meðan dýr dvelur á einangrunarstöð eða sambærilegri stofnun.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Hvernig sæki ég um gæludýratryggingu?
Fylla þarf út umsókn og heilbrigðisvottorð þarf að fylgja með ef sótt er um sjúkrakostnaðartryggingu eða líf- og heilsutryggingu. Frekari gögnum þarf einnig að skila inn sé um ræktunardýr að ræða eða dýr með ákveðið þjálfað notagildi.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
