26. maí 2026
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 20. maí 2026 í Landsbankanum, Reykjastræti 6, Reykjavík.
Á fundinum fór fram kosning tveggja aðalmanna og tveggja varamanna.
Í aðalstjórn voru kjörin Kristín Lúðvíksdóttir og Valur Ægisson. Í varastjórn voru kjörin Kristín Hrefna Halldórsdóttir og Ólafur Örn Ingólfsson.
Í aðalstjórn Íslenska lífeyrissjóðsins eftir ársfund 2026 eru:
- Atli Atlason
- Kristín Lúðvíksdóttir
- Una Eyþórsdóttir
- Valur Ægisson
- Þórir Óskarsson
Varamenn eru:
- Kristín Hrefna Halldórsdóttir
- Ólafur Örn Ingólfsson