13. maí 2026
Kjör aðalmanna í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins er hafið.
Kosning fer fram með rafrænum hætti.
Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára.
Heimilt er að velja einn eða tvo frambjóðendur.
Atkvæðaréttur sjóðfélaga fer eftir inneign þeirra og réttindum við næstliðin mánaðarmót.
Kosningu lýkur þriðjudaginn 19. maí kl. 16.00.
Niðurstöður kosninga verða kynntar á ársfundi sjóðsins sem hefst kl. 16.00 þann 20. maí 2026.