Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2026 kl. 16 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.
Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja, einn varamann til þriggja ára og einn varamann til tveggja ára. Framboðsfrestur til varastjórnar rennur út á ársfundinum sjálfum. Kjör varamanns fer fram á ársfundinum.
Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Fimm framboð bárust. Vegna núverandi kynjasamsetningar stjórnar verður a.m.k. annað stjórnarsætið skipað konu. Rafræn kosning hefst miðvikudaginn 13. maí 2026 og lýkur kl.16.00 þriðjudaginn 19. maí 2026.
Frambjóðendur í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins eru:
Ég er stjórnarmaður og umbreytingarleiðtogi með umfangsmikla reynslu af stefnumótun, stjórnarstörfum, mannauðsmálum, sjálfbærni og uppbyggingu fyrirtækja í íslensku atvinnulífi.
Ég sat í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins í 10 ár og átti jafnframt sæti í fjárfestingarráði sjóðsins. Á sama tíma var ég varamaður í Landssamtökum lífeyrissjóða í 8 ára og hef því djúpa þekkingu á stjórnarháttum, langtímafjárfestingum, áhættustýringu og þeim áskorunum sem lífeyrissjóðir standa frammi fyrir í ört breytilegu fjárfestinga- og rekstrarumhverfi.
Ég sit í stjórn Bláa lónsins og er stjórnarformaður Festu - miðstöðvar um sjálfbærni. Þá leiði ég stjórn Jafnvægisvogarinnar sem vinnur að auknu jafnvægi í efstu lögum stjórnunar í íslensku atvinnulífi.
Á ferli mínum hefur hún gegnt lykilhlutverkum hjá fyrirtækjum á borð við að vera framkvæmdastjóri hjá Símanum og The Reykjavik EDITION og forstöðumaður hjá Icelandair hótelum þar sem ég hef leitt umbreytingarverkefni og tengt stefnu, menningu, mannauð og sjálfbærni beint við rekstur og árangur.
Ég legg áherslu á góða stjórnarhætti, gagnadrifna ákvarðanatöku, ábyrga og sjálfbæra verðmætasköpun og langtímahugsun í þágu sjóðfélaga.

Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins eftir tvö ár í stjórn sjóðsins og í fjárfestingaráði hans. Reynslan af þeim störfum hefur verið afar lærdómsrík og hefur aukið enn frekar skilning minn á mikilvægi vandaðrar stjórnunar, ábyrgrar fjárfestingarstefnu og traustrar framtíðarsýnar í rekstri lífeyrissjóða. Í upphafi árs 2025 fór ég jafnframt í hæfismat hjá Fjármálaeftirlitinu sem ég stóðst.
Ég hef víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumótun. Frá september 2025 hef ég starfað sem CEO hjá Hopp Reykjavík, þar sem ég leiði starfsemi fyrirtækisins og vinn að áframhaldandi þróun og uppbyggingu á sviði sjálfbærra samgangna og tæknilausna. Þar áður hef ég gegnt stjórnendastörfum hjá bæði sprota- og tæknifyrirtækjum, meðal annars sem CEO hjá Flow og sem forstöðumaður hjá Origo þar sem ég stýrði teymi sérfræðinga í hugbúnaðarþróun, þjónustu og vörustýringu.
Á ferli mínum hef ég unnið mikið með gögn, greiningar, rekstur og vöruþróun, meðal annars hjá Meniga og Valitor, þar sem ég þróaði lausnir fyrir fyrirtæki og stjórnendur og kom að innleiðingu gagnadrifinna vinnubragða. Ég hef jafnframt sterkan bakgrunn í stjórnun og stefnumótun með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands auk BA-gráðu í stjórnmálafræði.
Ég tel mikilvægt að stjórnarmenn lífeyrissjóða sameini fagmennsku, gagnsæi og framsýni. Sjálf legg ég ríka áherslu á heiðarleika, hreinskiptin samskipti og ábyrga ákvarðanatöku. Ég hef mikinn áhuga á samfélagsmálum, nýsköpun og sjálfbærri verðmætasköpun og tel að reynsla mín úr atvinnulífi, stjórnun og fjárfestingum nýtist vel í áframhaldandi störfum fyrir sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins.
Ég óska eftir stuðningi til áframhaldandi starfa í stjórn sjóðsins.

Ég er með 19 ára reynslu úr fjármálageiranum. Frá árinu 2014 hef ég starfað hjá samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og byggt þar upp fræðsluvettvanginn Fjármálavit. Í því starfi hef ég tengst kennurum og skólastjórnendum víða um land, haldið fjölda fræðsluerinda um fjármál fyrir ungmenni, skipulagt námskeið fyrir kennara og undirbúið kennsluefni. Á vettvangi SFF hef ég að auki komið að ýmsum öðrum verkefum tengdum fræðslu- og loftlagsmálum og leiddi um tíma vinnu sérfræðingahóps fjármálafyrirtækja við innleiðingu Evrópuregluverks á sviði sjálfbærni. Ég er fulltrúi SFF í menntastarfi Samtaka atvinnulífsins og hef á þeim vettvangi haldið utan um starf dómnefndar við val á Menntafyrirtæki ársins. Ég sit í fulltrúaráði VIRK.
Á árunum 2007 – 2014 starfaði ég í Landsbankanum við verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf, þjónustustjórnun og fræðslu til viðskiptavina, en samhliða ofangreindum störfum hef ég tuttugu ára reynslu sem gæðastjóri skoðunarstofunnar Rafskoðun ehf.
Ég er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
Í störfum mínum hef ég þróað sterka hæfni í verkefnastjórnun, samskiptum og miðlun og hef mikla reynslu af því að leiða samstarf ólíkra aðila að sameiginlegum markmiðum.
Ég tel að reynslan mín og þekking af störfum innan fjármálageirans sé gott veganesti til stjórnarsetu í Íslenska lífeyrissjóðnum.

Ég starfaði sem sérfræðingur í Landsbanka Íslands í Hagfræði- og áætlanadeild 1980, var forstöðumaður Hagfræðideildar bankans frá 1985- 1988, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs 1988- 1992 og forstöðumaður Fjárstýringar á Alþjóða- og fjármálasviði frá þeim tíma til 1. apríl 2003.
Samhliða störfum í Landsbanka gegndi ég starfi framkvæmdastjóra SÍV- Sambands íslenskra viðskiptabanka ( nú SFF ) frá 1986-1992.
Ég hóf störf hjá KB banka 1. febrúar 2004 með staðsetningu í Kaupthing Bank Sverige í Stokkhólmi. Tók þátt í uppbyggingu Fyrirtækjasviðs (Corporate Banking) einingar sem ekki var þar fyrir og samhæfði vinnubrögð í stórum lánveitingum og sambankalánum milli Kaupthing Bank Sverige og höfuðstöðva KB banka á Íslandi. Var ráðinn til SPRON 1. nóvember 2005 til að stofna Fyrirtækjaráðgjöf SPRON (Corporate Finance). Fluttist snemma á árinu 2006 yfir í Fjárstýringu SPRON.
Hóf störf í Fjármálaeftirliti (FME) í febrúar 2010. Sat í vinnuhópi sem stýrt var af Seðlabanka um afnámsáætlun vegna gjaldeyrishafta frá mars 2011. Lauk störfum í Fjármálaeftirliti í júní 2011.
Hef unnið við sjálfstæð ráðgjafarverkefni, sem einkum tengjast fjármálamarkaði, lánamarkaði og gjaldeyrismarkaði. Af öðrum stórum verkefnum má nefna að ég var í forsvari innan Landsbankans þegar bankinn tók að sér leiðandi hlutverk innanlands með þátttöku innlendra og erlendra banka í fjármögnun Hvalfjarðarganga á framkvæmdatíma. Var í nokkur ár forseti í ACI Ísland, alþjóðlegum samtökum fagfólks á fjármagnsmarkaði.
Á starfsferli mínum hef ég umgengist og kynnst fjölda erlendra bankamanna auk þess að taka þátt í kynningum og undirbúningi fyrir lánshæfismatsfyrirtækin Moody´s og Fitch á fyrstu árum lánshæfismats á íslenskum bönkum. Þá hef ég umgengist, unnið með og þekki fjölda aðila innan bankakerfis, stofnana og ráðuneyta auk fjölda aðila úr atvinnulífi og viðskiptalífi.
Ég sat í endurskoðunarnefnd Íslenska lífeyrissjóðsins um árabil.

Ég óska eftir stuðningi ykkar í kosningu til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins á ársfundi sjóðsins sem fram fer 20. maí.
Ég starfa sem forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun og hef víðtæka reynslu af samningagerð, greiningum og uppbyggingu viðskiptasambanda. Ég starfaði áður við eignastýringu hjá Íslandsbanka og Landsbankanum, meðal annars við fjárfestingar fyrir lífeyrissjóði.
Ég er verkfræðingur (M.Sc.) með próf í verðbréfaviðskiptum, lærður markþjálfi og hef lokið námi um ábyrgð og árangur stjórnarmanna við Háskólann í Reykjavík auk stjórnendanáms frá Harvard Business School. Þá hef gegnt trúnaðarstörfum fyrir Íslenska lífeyrissjóðinn og átt sæti í varastjórn, endurskoðunarnefnd og fjárfestingaráði.
Áherslur mínar fyrir framtíð sjóðsins eru að tryggja góða langtímaávöxtun eigna sjóðfélaga með ábyrgri og faglegri fjárfestingarstefnu. Að efla upplýsingagjöf til sjóðfélaga um ávöxtun, árangur og valkosti við töku lífeyris og stuðla að áframhaldandi vexti sjóðsins og aukinni rekstrarhagkvæmni til hagsbóta fyrir sjóðfélaga.
