Framboðsfrestur aðalmanna til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 13. maí 2026.
Framboð aðalmanna skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík eða til Ólafs Páls Gunnarssonar framkvæmdastjóra sjóðsins. Framboðstilkynningu skal fylgja stutt kynning á frambjóðanda, s.s. upplýsingar um starfsferil og ljósmynd af frambjóðanda.
Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára. Vegna núverandi kynjasamsetningar stjórnar verður a.m.k. annað stjórnarsætið skipað konu, sbr. 4. mgr. 29. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Rafræn kosning aðalmanna
Kjör aðalmanna í stjórn fer fram með rafrænum hætti á vef sjóðsins. Kosning hefst viku fyrir ársfund og lýkur þriðjudaginn 19. maí kl. 16.00.
Atkvæðaréttur sjóðfélaga fer eftir inneign þeirra og réttindum við næstliðin mánaðarmót.
Niðurstöður kosninga verða kynntar á ársfundinum.
Kjör varamanna
Á ársfundinum verða jafnframt kosnir tveir varamenn, einn til þriggja ára og annar til tveggja ára. Framboðum varamanna má skila inn í síðasta lagi á ársfundinum sjálfum.









