Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2026, kl. 16.00 í Landsbankanum, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík.
Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins:
- Skýrsla stjórnar
- Kynning á ársreikningi
- Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
- Kosning í stjórn
- Kosning endurskoðanda
- Tillögur um breytingar á samþykktum
- Laun stjórnarmanna
- Önnur mál
Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti a.m.k. tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögur til ályktana sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðsfrestur aðalmanna til stjórnar rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn 13. maí 2026. Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára. Framboð aðalmanna skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík. Kjör aðalmanna í stjórn fer fram með rafrænum hætti. Kosning hefst viku fyrir ársfund og lýkur þriðjudaginn 19. maí kl. 16.00. Vegna núverandi kynjasamsetningar stjórnar verður a.m.k. annað stjórnarsætið skipað konu, sbr. 4. mgr. 29. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Fyrirkomulag rafrænnar kosningar verður kynnt með nánari hætti á vef sjóðsins.
Á ársfundinum verða jafnframt kosnir tveir varamenn, einn til þriggja ára og annar til tveggja ára. Framboðum varamanna má skila inn í síðasta lagi á fundinum sjálfum. Kjör varamanna fer fram á ársfundinum. Tillögur um breytingar á samþykktum og framboð aðalmanna til stjórnar verða birt á vefsvæði sjóðsins viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef sjóðsins, www.islenskilif.is eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040.









