Fram­bjóð­end­ur í stjórn­ar­kjöri Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins - 2020

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 27. maí 2020 kl. 17 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára.
22. maí 2020

Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Tvö framboð bárust og er því sjálfkjörið í aðalstjórn.

Frambjóðendur í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins 27. maí 2020 eru:

  • Erla Ósk Ásgeirsdóttir
  • Snorri Ómarsson

Kynning á frambjóðendum

Erla Ósk Ásgeirsdóttir, f. 1977

Erla Ósk starfar sem forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs Icelandair hótela. Erla Ósk hefur verið varamaður í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða frá árinu 2015. Jafnframt situr hún í Útflutnings-og markaðsráði ásamt því að vera varamaður í stjórn Íslandsstofu. Erla var stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta árinu 2014-2019. Hún er með MPA gráðu frá Háskóla Íslands auk B.A. prófs í stjórnmálafræði. Erla útskrifaðist með alþjóðlegt IATA/UFTA próf frá Ferðamálaskóla Íslands árið 1999. Erla Ósk hefur sótt námskeið um árangur og ábyrgð stjórnarmanna hjá Háskólanum í Reykjavík. Erla hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá árinu 2012.

Snorri Ómarsson, f. 1971

Snorri er starfandi flugstjóri hjá Icelandair og hefur gegnt störfum þjálfunarflugstjóra með hléum frá árinu 2017. Lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1991, BS prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Starfsmaður Icelandair frá 1998-2007 og aftur frá 2009. Starfsmaður í greiningardeild Landsbanka Íslands hf. frá 2007-2009. Í sparisjóðsnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, vorið 2013. Í Trúnaðarráði FÍA árið 2011-2012. Í Starfsráði FÍA/Icelandair frá 2012-2018. Í samninganefnd FÍA frá árinu 2013-2014 og unnið að sérfræðistörfum fyrir nefndina frá árinu 2016. Varamaður í stjórn Eftirlaunasjóðs atvinnuflugmanna frá 1999-2005. Í Alþjóðanefnd FÍA frá 2017-2018. Formaður fjármála og greiningardeildar FÍA frá árinu 2019. Snorri hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá júní 2011, og varaformaður stjórnar frá árinu 2013. Snorri var kosinn til tveggja ára á aðalfundi Íslenska lífeyrissjóðsins árið 2018.

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
19. maí 2023
Frambjóðendur í stjórnarkjöri Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára.
New temp image
28. apríl 2023
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
New temp image
11. jan. 2023
Breyting á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á aukaársfundi sjóðsins þann 10. nóvember 2022. Nýjar samþykktir tóku gildi 1. janúar 2023.
New temp image
1. des. 2022
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði og tengdum lögum sem taka gildi um áramót
Breytingar á lögum lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum sem kunna að hafa áhrif á sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins taka gildi um næstu áramót. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar:
New temp image
30. nóv. 2022
Fundargerð aukaársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022
Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 10. nóvember 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
New temp image
27. okt. 2022
Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Á aukaársfundi Íslenska lífeyrissjóðsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 10. nóvember n.k. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
New temp image
19. okt. 2022
Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 10. nóvember 2022
Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins boðar til aukaársfundar sjóðsins fimmtudaginn 10. nóvember 2022, kl. 17 í Landsbankanum Austurstræti 11.
New temp image
14. sept. 2022
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði
Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum s.l. vor. Helstu breytingar lúta að hækkun lágmarksiðgjalds í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5%, lögfestingu á svokallaðri tilgreindri séreign, breytingum á úrræði um fyrstu kaup og skerðingum á greiðslum frá Tryggingastofnun (TR). Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023.
New temp image
30. maí 2022
Fundargerð ársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 4. maí 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
New temp image
8. apríl 2022
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins - 2022
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur