Um út­greiðslu sér­eign­ar­sparn­að­ar

Í síðasta mánuði var opnað fyrir umsóknir um tímabundna útgreiðslu séreignarsparnaðar.
20. maí 2020

Sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar verður hér eftir greidd út 20. hvers mánaðar. Umsókn sem berst 15. hvers mánaðar eða fyrr er greidd út 20. sama mánaðar.

Hægt að sækja um með rafrænum skilríkjum

Hægt er að sækja um tímabundna útgreiðslu á séreignarsparnaði með rafrænum skilríkjum á sjóðsfélagavef.

Sækja um

Hægt að sækja um með tölvupósti

Þeir sem ekki eru með rafræn skilríki geta sent póst á netfangið RadgjofVL@landsbankinn.is og óskað eftir því að fá sent umsóknarform. Þegar formið hefur verið fyllt út og undirritað skal skanna það (eða taka mynd af undirrituðu skjali með símanum) og senda aftur á sama netfang.

Um úttekt séreignarsparnaðar

Séreignarsparnaður (viðbótarlífeyrissparnaður) er alla jafna ekki laus til útgreiðslu fyrr en 60 ára aldri er náð. Vegna Covid-19 hafa stjórnvöld veitt heimild fyrir tímabundinni útgreiðslu. Þetta úrræði getur hentað vel fyrir þá sem missa tekjur, sérstaklega ef annar sparnaður er ekki fyrir hendi. Á hinn bóginn þarf að hafa í huga að við úttektina minnkar inneignin sem verður til taks þegar fólk nær lífeyrisaldri en þá lækka tekjur almennt töluvert.

  • Hægt er að taka út að hámarki 12 milljónir króna.
  • Hægt er að taka að hámarki 800.000 krónur á mánuði.
  • Engar sérstakar takmarkanir eru á ráðstöfun fjármunanna.
  • Úttektin er tekjuskattsskyld.
Þú gætir einnig haft áhuga á
19. maí 2023

Frambjóðendur í stjórnarkjöri Íslenska lífeyrissjóðsins

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára.
28. apríl 2023

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
11. jan. 2023

Breyting á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á aukaársfundi sjóðsins þann 10. nóvember 2022. Nýjar samþykktir tóku gildi 1. janúar 2023.
1. des. 2022

Breytingar á lögum um lífeyrissjóði og tengdum lögum sem taka gildi um áramót

Breytingar á lögum lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum sem kunna að hafa áhrif á sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins taka gildi um næstu áramót. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar:
30. nóv. 2022

Fundargerð aukaársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022

Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 10. nóvember 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
27. okt. 2022

Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins

Á aukaársfundi Íslenska lífeyrissjóðsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 10. nóvember n.k. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
19. okt. 2022

Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 10. nóvember 2022

Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins boðar til aukaársfundar sjóðsins fimmtudaginn 10. nóvember 2022, kl. 17 í Landsbankanum Austurstræti 11.
14. sept. 2022

Breytingar á lögum um lífeyrissjóði

Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum s.l. vor. Helstu breytingar lúta að hækkun lágmarksiðgjalds í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5%, lögfestingu á svokallaðri tilgreindri séreign, breytingum á úrræði um fyrstu kaup og skerðingum á greiðslum frá Tryggingastofnun (TR). Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023.
30. maí 2022

Fundargerð ársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 4. maí 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
8. apríl 2022

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
Vefkökur

Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur