Sparireikningur í erlendri mynt
Sparireikningur í erlendri mynt
Sparireikningur í erlendri mynt er reikningur fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt í erlendum gjaldmiðlum. Reikningurinn hentar þeim sem eru með viðskipti í erlendri mynt og geta tekið áhættu vegna gengissveiflna.
- Óbundinn eða bundinn í 3 eða 6 mánuði
- Óverðtryggður
- Vextir fara eftir gjaldmiðli
- Vextir greiddir árlega
Binditími
Bundnir reikningar bera að jafnaði hærri vexti en óbundnir reikningar. Innstæða á bundnum sparireikningum binst í umsaminn binditíma. Sérhver innborgun er laus í einn mánuð að loknum binditíma en binst síðan aftur í umsaminn binditíma.
Vextir fara eftir gjaldmiðli og bindingu
| Tegund reiknings | Óbundinn | Bundinn í 3 mánuði | Bundinn í 6 mánuði |
|---|---|---|---|
| USD | 3,30% | 3,45% | 3,60% |
| GBP | 3,40% | 3,55% | 3,70% |
| CAD | 1,90% | 2,05% | 2,20% |
| DKK | 1,70% | 1,85% | 2,00% |
| NOK | 3,85% | 4,00% | 4,15% |
| SEK | 1,55% | 1,70% | 1,85% |
| PLN | 3,00% | 3,15% | 3,30% |
| CHF | 0,00% | 0,15% | 0,30% |
| JPY | 0,45% | 0,50% | 0,55% |
| EUR | 1,65% | 1,80% | 1,95% |
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.