Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Auka­árs­fund­ur Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins 10. nóv­em­ber 2022

19. október 2022

Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins boðar til aukaársfundar sjóðsins fimmtudaginn 10. nóvember 2022, kl. 17 í Landsbankanum Austurstræti 11.

Dagskrá fundarins

  1. Breytingar á samþykktum og réttindatöflum.
  2. Önnur mál.

Tillögur til breytinga á samþykktum verða birtar a.m.k. tveimur vikum fyrir aukaársfundinn á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is.

Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á fundinum. Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins hvetur sjóðfélaga til þess að mæta.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040.

Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins.

Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins