Hvert kort kostar 540 kr. en viðskiptavinir Landsbankans fá 50% afslátt. Kortinu fylgja fallegar gjafaumbúðir sem tilvalið er að nota til að skrifa skilaboð til viðtakanda og spara sér þannig kaup á öðru slíku.
Gjafakort
Hvernig virka gjafakortin?
Þú ákveður upphæðina og viðtakandi velur gjöfina
Gjafakortin koma fallega innpökkuð
Hægt að skrá kortið í Apple Wallet og Google Wallet
Gjafakortasjálfsalar eru staðsettir í Mjódd, Borgartúni og Hamraborg

Gjafakortið í símann
Þú getur notað gjafakortið þitt þegar þú borgar með símanum. Bættu gjafakortinu við Google Wallet eða Apple Wallet og byrjaðu að borga.
Skráðu kortið í Google Wallet
Þú getur skráð kortið þitt beint í Google Wallet og byrjað að borga snertilaust í verslunum, í öppum og á vefsíðum.
1
Opnaðu Google Wallet eða sæktu það í Google Play Store.
2
Veldu „Add to Wallet“ og bættu kortinu við veskið.
3
Sláðu inn staðfestingarkóða sem þú færð sendan með SMS.
4
Staðfestu að Google Wallet verði aðalgreiðslugátt tækisins.
Skráðu kortið í Apple Wallet
Með Apple Pay getur þú borgað á öruggan hátt með símanum. Skráðu kortið þitt í Apple Wallet og byrjaðu að borga snertilaust.
iPhone
Opnaðu Wallet og veldu „+“ táknið efst í hægra horninu.
Apple Watch
Opnaðu Apple Watch appið í símanum, veldu „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Credit or Debit Card“.
iPad
Farðu í Settings, veldu „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Credit or Debit Card“.
MacBook Pro með Touch ID
Farðu í System Preferences, veldu „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Card“.
Algengar spurningar
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
