Landsbankinn tekur enga þóknun fyrir samstarfið svo eini kostnaðurinn fyrir samstarfsaðila er afslátturinn sem þeir veita viðskiptavinum. Afslátturinn er reiknaður mánaðarlega og krafa send í netbanka samstarfsaðila.
Aukakrónusamstarf
Ávinningur fyrir alla
Aukakrónur eru fríðindakerfi Landsbankans en um 75.000 viðskiptavinir okkar safna Aukakrónum.
Vilt þú gerast samstarfsaðili Aukakróna?
Viðskiptavinir okkar safna Aukakrónum af allri innlendri veltu og fá að auki afslátt í formi Aukakróna hjá samstarfsaðilum okkar. Aukakrónur eru greiddar út á sérstakt Aukakrónukort sem viðskiptavinir geta nálgast í Landsbankaappinu. Kortið er stafrænt og það er hægt að setja það í farsímalausnir á sama hátt og öll önnur greiðslukort Landsbankans. Yfir 526 milljónir Aukakróna voru greiddar til samstarfsaðila árið 2022.
Þinn ávinningur
Ávinningur fyrir þitt fyrirtæki er margþættur, t.d. miklir möguleikar á aukinni veltu, aukinn sýnileiki og góð skýrslugjöf þar sem farið er yfir heildarveltu, söfnun og úttektir í hverjum mánuði.
Landsbankinn tekur enga þóknun fyrir samstarfið svo eini kostnaðurinn fyrir samstarfsaðila er afslátturinn sem þeir velja að veita viðskiptavinum. Afsláttarprósenta er samningsatriði en algengast er að veita 5% afslátt.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.