Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Ice­land Airwaves + Lands­bank­inn

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni stendur bankinn að útgáfunni í samvinnu við rapparann Birni og hljómsveitirnar GDRN og Between Mountains sem sigraði Músíktilraunir 2017.
30. október 2017

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni stendur bankinn að útgáfunni í samvinnu við rapparann Birni og hljómsveitirnar GDRN og Between Mountains sem sigraði Músíktilraunir 2017. Á vefsvæðinu má einnig finna eldri samstarfsverkefni með Júníusi Meyvant, Vök, Rugl og fleirum.

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin dagana 1.-5. nóvember í miðborg Reykjavíkur. Landsbankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014. Í tengslum við hátíðina heldur bankinn úti vefnum landsbankinn.is/icelandairwaves og þar hafa verið birt myndbönd og viðtöl við unga og upprennandi tónlistarmenn í gegnum árin. Á vefnum er hægt að fá forsmekkinn af einni stærstu tónlistarhátíð ársins og sjá dæmi um þá miklu grósku sem er í íslensku tónlistarlífi.

Off-venue tónleikar

Landsbankinn mun einnig standa að svokölluðum Off-venue tónleikum í tengslum við hátíðina.

Dagskrá:

Stúdentakjallarinn, fimmtudagurinn 2. nóvember

Kl. 17.00 – Birnir / Floni

Stúdentakjallarinn, föstudagurinn 3. nóvember

Kl. 17.00 – GDRN

Kl. 17.30 – DJ B-ruff

Landsbankinn, Strandgötu 1 Akureyri, föstudagurinn 3. nóvember

Kl. 16.00 - Birnir

Landsbankinn, Austurstræti 11, laugardagurinn 4. nóvember

Kl. 15.00 – Between Mountains

Kl. 15.45 - GDRN

Kl. 16.30 – Birnir/Joey Christ

Þú gætir einnig haft áhuga á
10. mars 2026
Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum  
Landsbankinn, í samstarfi við TM, býður nú upp á tryggingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Viðskiptavinum bankans bjóðast betri kjör og fyrsta flokks tryggingaþjónusta.
27. feb. 2026
EM-herferð Landsbankans með þrjár tilnefningar
Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.
Stúlka með síma
27. feb. 2026
10 milljónir í námsstyrki
Landsbankinn hefur opnað fyrir umsóknir um námsstyrki fyrir árið 2026. Bankinn hefur stutt efnilegt námsfólk með styrkjum um 36 ára bil og í ár var ákveðið að hækka heildarupphæð námsstyrkjanna um tvær milljónir. Heildarupphæð námsstyrkja í ár er því 10 milljónir.
26. feb. 2026
Landsbankinn bakhjarl Listahátíðar í Reykjavík
Landsbankinn og Listahátíð í Reykjavík hafa skrifað undir samstarfssamning þess efnis að bankinn verði bakhjarl hátíðarinnar til ársins 2028. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skrifuðu undir samkomulagið.
18. feb. 2026
Kristín Gunnarsdóttir leiðir nýja deild Upplýsingamiðlunar 
Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði Samskipta og menningar sem tekur til starfa í lok febrúar. Undir deildina falla samskiptateymi og Greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.
Svanni
18. feb. 2026
Frestur til að sækja um lánatryggingu úr Svanna
Landsbankinn hefur endurnýjað samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, til fjögurra ára. Nýr samningur gildir út september 2029.
Austurbakki
5. feb. 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi við kaup Styrkás á Gallon
Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung ehf. undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Seljandi er Skel fjárfestingafélag hf.
Netsvik
29. jan. 2026
Vörum við svikapóstum í nafni bankans
Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.
Netbanki fyrirtækja
16. jan. 2026
Breyting á fjárhæðum í millibankakerfi Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að breyta fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu.
16. jan. 2026
Orden vann í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans
Teymið Orden bar sigur úr býtum í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans og hlaut að launum 150.000 krónur í verðlaunafé og sæti í 10 liða lokakeppni Gulleggsins.