Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Vild

Fáðu meira með Vild

Það borg­ar sig að vera í við­skipt­um hjá okk­ur. Í Vild færðu betri kjör, meiri fríð­indi og fleiri Aukakrón­ur.

Þú finn­ur þína Vild í app­inu.

Safnaðu stigum
Þú safnar stigum með því að nýta þjónustu okkar.
Farðu upp um þrep
Fjöldi stiga ákvarðar vildarþrep þitt.
Nýttu fríðindin
Því hærra þrep, því meiri fríðindi færðu.

Svona virkar Vild

Vild byggir á heildarsambandi þínu við bankann. Þegar þú nýtir þjónustu okkar færðu stig sem færa þig upp um vildarþrep. Því ofar sem þú ferð því meiri fríðindi færðu. Hér sérðu vildarþrepin og fríðindin sem þú færð í hverju þrepi.

Unga fólkið

13 til 24 ára

Nánar

Vild 1

3.000 til 6.999 stig

Nánar

Vild 2

7.000 til 14.999 stig

Nánar

Vild 3

15.000 stig eða fleiri

Nánar

Svona færðu stig

Við höfum mismunandi þarfir í fjármálaþjónustu á ólíkum stigum í lífinu. Þess vegna eru margar leiðir til að safna stigum.

Sparnaður

3.000 stig

Sparnaður

    Þú færð 3.000 stig ef þú ert með sparnað hjá okkur. Þú færð stigin ef eitt af eftirfarandi á við um þig:

    • Þú átt að minnsta kosti 500.000 krónur á sparireikningi hjá okkur.
    • Þú hefur verið með að minnsta kosti eina færslu á mánuði á sparireikningi tvo af síðustu þremur mánuðum.

    ... svo færðu hærri vexti þegar þú sparar á Markmiðsreikningi í appinu ef þú ert í Vild 2 eða 3.

Heildarsparnaður yfir 20 m. kr.

2.000 - 5.000 stig

Heildarsparnaður

    Þú safnar fleiri stigum eftir því sem sparnaðurinn þinn vex.

    • Yfir 20 m.kr. - 2.000 stig
    • Yfir 50 m.kr. - 5.000 stig

    Hvernig er þetta reiknað?

    Samanlögð staða á sparnaði, verðbréfum og viðbótarlífeyrissparnaði þarf að fara yfir ofangreind viðmið til að þú fáir stigin.

Íbúðalán

5.000 stig

Íbúðalán

    Þú færð 5.000 stig með því að vera með íbúðalán hjá okkur, óháð upphæð eða fjölda lána.

    • Þú heldur stigunum þínum ef þú endurfjármagnar lánið eða tekur viðbótarlán hjá okkur.
    • Þegar þú hefur verið með íbúðalán í 10 ár eða lengur haldast stigin þegar lánið er greitt upp.

Íbúðalán í yfir 10 ár

2.000 stig

Íbúðalán í yfir 10 ár

    Þú færð 2.000 stig ef þú hefur verið með íbúðalán hjá bankanum í samtals 10 ár eða lengur.

    • Við reiknum árafjöldann út frá upphafsdegi íbúðaláns, aftur til janúar 2015.
    • Þegar þú hefur verið með íbúðalán í 10 ár eða lengur haldast stigin þegar lánið er greitt upp.

Bílalán

4.000 stig

Bílalán

    Þú færð 4.000 stig ef þú ert með bílalán eða bílasamning hjá okkur.

    • Þú færð stigin óháð upphæð eða fjölda bílalána.
    • Stigin falla niður þegar lánið hefur verið greitt upp.

Aukalán

2.000 stig

Aukalán

    Þú færð 2.000 stig ef þú ert með Aukalán hjá okkur.

    • Þú færð stigin óháð upphæð eða fjölda lána.
    • Stigin falla niður þegar lánið hefur verið greitt upp.

    Ef þú ert með yfirdrátt getur verið gott að breyta honum í Aukalán. Þannig getur þú fengið hagstæðari kjör og safnað fleiri stigum.

Viðbótarlífeyrissparnaður

3.000 stig

Viðbótarlífeyrissparnaður

    Þú færð 3.000 stig ef þú ert með viðbótarlífeyrissparnað hjá okkur eða Íslenska lífeyrissjóðnum.

    • Þú þarft að hafa greitt iðgjald á undanförnum 12 mánuðum.
    • Námsmenn og aðrir sem eru í vinnu á sumrin eða hlutavinnu halda stigunum sínum svo lengi sem greitt er í sparnaðinn á hverju ári.
    • 60 ára og eldri halda stigunum sínum ef eign í sjóðnum er hærri en 1 m.kr.

Tryggingar

3.000 stig

Tryggingar

    Þú færð 3.000 stig með því að vera með allan pakkann eða í Fjölskylduleið hjá okkur.

    • Þar að auki getur þú fengið allt að 10% endurgreiðslu árlega ef þú ert tjónlaus.
    • Þú safnar ekki stigum ef þú ert einungis með ökutækjatryggingu eða stakar tryggingar en það er einfalt að bæta fleiri tryggingum við í appinu.

    Hvaða tryggingar þarf ég að vera með til að komast í Fjölskylduleið?

    Til þess að komast í Fjölskylduleið þarftu að vera með Heimatryggingu 2, 3 eða 4 og tvær aðrar tegundir trygginga úr listanum hér að neðan:

    • Barnatrygging
    • Húseigendatrygging
    • Líftrygging eða sjúkdómatrygging
    • Slysa- og sjúkratrygging
    • Sumarhúsatrygging
    • Lausafjártrygging
    • Ökutækjatrygging – fólksbifreið til einkanota

Verðbréf

3.000 stig

Verðbréf

    Þú færð 3.000 stig með virkum verðbréfaviðskiptum. Virkni merkir að minnst eitt af eftirfarandi eigi við um þig:

    • Þú hefur átt viðskipti með hlutabréf, skuldabréf og/eða sjóði á síðustu 12 mánuðum.
    • Þú átt verðbréfaeign sem nemur að minnsta kosti 500.000 krónum.

    Einfaldasta leiðin til að spara reglulega í sjóðum er að skrá sig í mánaðarlega áskrift. Lágmarksáskrift í sjóðum er 5.000 kr. á mánuði.

Notkun á appi eða netbanka

1.000 stig

Regluleg notkun á appi eða netbanka

    Þú færð 1.000 stig með því að nota appið eða netbankann okkar reglulega.

    Til að fá stigin þarft þú að hafa skráð þig a.m.k. þrisvar sinnum inn í appið eða þrisvar sinnum í netbankann á síðastliðnum mánuði.

Lengd viðskiptasambands

1.000 - 3.000 stig

Lengd viðskiptasambands

    Við kunnum vel að meta langt og traust samband. Fjöldi stiga fer eftir því hversu lengi þú hefur verið í viðskiptum:

    • 1.000 stig ef þú hefur verið virkur viðskiptavinur í 2-4 ár.
    • 2.000 stig fyrir 5-9 ár.
    • 3.000 stig ef þú hefur verið virkur viðskiptavinur í 10 ár eða lengur.

    Því lengur sem þú ert í viðskiptum, því meira færðu til baka í formi stiga og fríðinda.

Fyrirtæki í viðskiptum

3.000 stig

Fyrirtæki í viðskiptum

    Þú færð 3.000 stig ef þú tengist fyrirtæki sem er í viðskiptum við okkur og hefur verið með að lágmarki 20 m.kr. í veltu, miðað við annað hvort síðasta ár eða það sem af er yfirstandandi ári – eftir því hvor fjárhæðin er hærri.

    Hverjir fá stigin?

    Framkvæmdastjórar og hluthafar sem eiga 25% eða meira í viðkomandi félagi.

Betri kjör á íbúðalánum

    Ef þú ert í vildarþrepi 2-3 færðu sérstök fríðindi þegar þú tekur nýtt íbúðalán eða endurfjármagnar hjá okkur.

    Vild 2

    Þú færð 50% af lántökugjaldinu endurgreitt í Aukakrónum.

    Vild 3

    Þú færð 0,10 prósentustigum lægri vexti á óverðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum og 50% af lántökugjaldinu endurgreitt í Aukakrónum.

Aukakrónur

    Þú safnar Aukakrónum þegar þú notar kreditkort eða fyrirframgreitt kort innanlands.

    Allar Aukakrónur sem þú safnar getur þú notað til að borga hjá samstarfsaðilum okkar. Svo safnast enn fleiri Aukakrónur í Vild.

    Ein Aukakróna = ein íslensk króna. Einfaldara gerist það ekki!

Enn betri kjör á tryggingum

    Með Vild getur þú fengið allt að 10% endurgreiðslu af tryggingum hjá okkur ef þú ert tjónlaus á tímabilinu.

    Þú færð líka aðgang að velferðartorgi þar sem þú getur fengið viðtal við sérfræðing innan 48 tíma. Fyrsti tíminn er þér að kostnaðarlausu.

    Að auki færð þú 1% endurgreiðslu í formi Aukakróna þegar þú greiðir fyrir tryggingarnar með korti sem er tengt Aukakrónukerfinu.

Algengar spurningar

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.