Skráning
Hagspá til 2029
Við bjóðum til opins fundar á Kjarval, Austurstræti 10a, miðvikudaginn 21. október kl. 17.30 í tilefni af útgáfu nýrrar hagspár bankans. Húsið opnar kl. 17.
Dagskrá
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, kynnir nýju hagspána og fer yfir stöðuna í efnahagslífinu og horfurnar fram undan. Að því loknu tekur Lisa Graver, forstjóri Alvotech, til máls.
Fundinum lýkur með pallborðsumræðum þar sem Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Árni Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans, Guðný Erla Guðnadóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum, og Lárus Welding, fjármálastjóri Stoða fjárfestingafélags, ræða efnahagshorfurnar frá ólíkum sjónarhornum.
