Fjármálamót
Fjármálamót
Hvernig bæti ég reksturinn með því að nýta gögn?
Fundur um hagnýtar lausnir og reynslu úr atvinnulífinu, miðvikudaginn 15. október kl. 17.00 í húsnæði Landsbankans, Reykjastræti 6.
Nánar um fundinn
Fyrirtæki búa yfir miklu magni upplýsinga – um viðskiptavini, kauphegðun, innkaup, birgðir og margt fleira. En hvernig hafa íslensk fyrirtæki nýtt þessi gögn til að taka betri ákvarðanir og bæta reksturinn?
Dagskrá
- Arnheiður K. Gísladóttir, forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Landsbankans.
- Haraldur Þór Jónsson, eigandi Heima Holiday Homes.
- Sigurður Máni Helguson, framkvæmdastjóri Brauð & Co.
- Egill Þorsteinsson, yfirmaður tækni- og þróunarmála hjá Domino’s á Íslandi.
- Brynjólfur Borgar Jónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri DataLab.
Að dagskrá lokinni verða umræður þar sem gestir fá tækifæri til að spyrja frummælendur spjörunum úr. Komdu og fáðu innblástur, hagnýta þekkingu og nýja sýn á hvernig gögn eru notuð til að styðja við reksturinn. Léttar veitingar verða í boði.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.