Fjármálamót: Hvernig byrja ég að fjárfesta?
Hvernig byrja ég að fjárfesta?
Fræðsla um fyrstu skrefin í fjárfestingu og sparnaði í Landsbankanum Reykjastræti 6, miðvikudaginn 26. febrúar kl. 17.00.
Fjármálamót í Landsbankanum þar sem við förum yfir grundvallaratriði í fjárfestingum og hvað ber að hafa í huga í breytilegu umhverfi. Við ætlum að fara yfir eignadreifingu, úrval sjóða, hlutabréfamarkaðinn og fleira, allt sem þú þarft að vita til að byrja að byggja upp þitt eigið eignasafn til framtíðar.
Dagskrá
- Jóhanna M. Jónsdóttir, þjónustustjóri og Nína R. Óladóttir, sérfræðingur hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans: Grunnurinn að fjárfestingum – hvar er best að byrja?
- Halldór Kristinsson, forstöðumaður hjá Landsbréfum: Hvernig nýti ég hlutabréfamarkaðinn og hlutabréfasjóði best til að byggja upp eignasafn?
- Guðný Erla Guðnadóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum: Eignadreifing í fjárfestingu og úrval sjóða – hvers vegna dreift eignasafn?
Að erindunum loknum gefst gestum tækifæri til að spyrja spurninga og fá góð ráð hjá sérfræðingum bankans.
Fundurinn stendur í um eina klukkustund.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.