Skráning
Hlutabréf með Landsbankanum
Landsbankinn býður til fræðslufundar í Reykjastræti 6, fimmtudaginn 15. október kl. 17.30.
Frá forvitni til fjárfestinga
Fundurinn er fyrir öll þau sem hafa áhuga á hlutabréfum, hvort sem þau eru að stíga sín fyrstu skref eða vilja bæta við þekkinguna.
Dagskrá
- Björn Berg, fjármálaráðgjafi, ræðir praktísku málin, allt frá fyrstu hlutabréfakaupum og þátttöku í útboðum til fjárfestinga til lengri tíma.
- Helgi Frímannsson, sérfræðingur í Markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, fer yfir stöðuna á hlutabréfamarkaði og horfur skráðra félaga.
- Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir frá félaginu, rekstrinum og fyrirhugaðri skráningu í Kauphöll.
Denis Cardaklija, deildarstjóri Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans, stýrir fundinum.
Léttar veitingar verða í boði - verið velkomin!
