Fram­bjóð­end­ur í stjórn­ar­kjöri Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins

29. apríl 2022

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 4. maí 2022 kl. 17.00 í Landsbankanum Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn kosnir af sjóðfélögum. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára. Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Tvö framboð bárust og er því sjálfkjörið í aðalstjórn.

Kynning á frambjóðendum í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins 4. maí 2022:

Atli Atlason f. 1966

Atli er deildarstjóri kjaradeildar hjá Landspítala. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1986 og Cand. oecon prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1992. Starfaði sem forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Fiskistofu 1992-1999, forstöðumaður starfmannahalds Búnaðarbankans 1999-2003, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbanka Íslands hf. 2003-2008, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans 2008-2010 og deildarstjóri kjaradeildar hjá Reykjavíkurborg 2012-2018. Hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009, sem varaformaður stjórnar frá maí 2011 og formaður stjórnar frá febrúar 2013. Atli var kosinn til þriggja ára á aðalfundi 2019.

Þórir Óskarsson f. 1976

Þórir er tryggingastærðfræðingur hjá Sjóvá. Lauk B.Sc. prófi í stærðfræði frá HÍ árið 2000 og stundaði nám í tryggingastærðfræði við Kaupmannahafnarháskóla 2003 til 2006 og lauk Cand. Act. prófi þaðan haustið 2006. Hann hlaut viðurkenningu FME sem tryggingastærðfræðingur 5. janúar 2009 og var sá fyrsti í 10 ár til að hljóta þá viðurkenningu. Starfaði hjá Vátryggingafélagi Íslands 2009-2020, m.a. sem forstöðumaður áhættustýringar og tryggingastærðfræðingur félagins. Starfaði sem tryggingastærðfræðingur hjá dönsku tryggingafélagi 2006-2009. Í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009 auk þess að sitja í endurskoðunarnefnd sjóðsins, formaður nefndarinnar frá 2011. Þórir var kosinn til þriggja ára á aðalfundi 2019.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur