Sumarleikur Iceland Airwaves
Vilt þú vinna miða á Iceland Airwaves?
Viðskiptavinir á aldrinum 18-24 ára eiga möguleika á að vinna miða á eina vinsælustu tónlistarhátíð landsins, Iceland Airwaves 2022.
Hvernig tek ég þátt?
Til að taka þátt þarf að gera tvennt. Greiða í viðbótarlífeyrissparnað hjá Landsbankanum og skrá sig hér fyrir neðan.
Séreignarsparnaður er launahækkun
Þegar þú greiðir í séreignarsparnað færð þú í raun launahækkun þar sem launagreiðandi greiðir 2% til viðbótar. Ein hagstæðasta leiðin til að spara fyrir útborgun fyrir fyrstu íbúð er að skrá sig í séreignarsparnað því slíkan sparnað er hægt að nota skattfrjálst til útborgunar.
Þarftu að láta vita af nýjum launagreiðanda?
Þegar þú byrjar í nýrri vinnu þá færist lífeyrissparnaðurinn ekki sjálfkrafa á milli, þú þarft því að skrá inn nýjan launagreiðanda til að greiða áfram í lífeyrissparnað. Á forsíðu sjóðfélagavefsins getur þú valið að breyta samningi og uppfært þar nýjan launagreiðanda. Einnig getur þú sent tölvupóst á vl@landsbankinn.is og látið vita af nýjum launagreiðanda.