Börn á aldrinum 9-12 ára þurfa samþykki forráðamanns til að stofna debetkort og fá aðgang að appi/netbanka. Þegar 13 ára aldri er náð þurfa þau ekki slíkt samþykki. Foreldrar og forráðamenn hafa heimild til að fylgjast með reikningum barna sinna þar til 18 ára aldri er náð, en þá verður barn fjárráða og sú heimild fellur niður.
Hvernig er hægt að stofna reikning og fá debetkort fyrir börn?
Til þess að stofna bankareikning í nafni barns þurfa barn og forráðamaður annað hvort að panta tíma í ráðgjöf í útibúi eða koma í viðskipti í gegnum appið eða netbankann. Ef þið komið í útibúð til að stofna reikning og fá debetkort fyrir barnið þarf foreldrið að hafa skilríki sín meðferðis (t.d. vegabréf). Ef barnið á rafræn skilríki er einfalt að stofna til viðskipta í appinu eða netbankanum en þá stofnast debetkort og reikningur.
Hvernig þjónusta er í boði fyrir börn og unglinga?
Fyrst um sinn mælum við með að stofnaður sé veltureikningur, sem tengdur er við debetkort, og sparnaðarreikningur. Mikilvægt er að börn læri snemma að umgangast peninga af ábyrgð og því leggjum við mikla áherslu á að kynna fyrir þeim fjármálalæsi, m.a. í gegnum Klassa, þjónustu sem er sérsniðin að þörfum barna og unglinga á aldrinum 9-15 ára. Sprotarnir eru vinsælt app sem Landsbankinn gaf út til að leiðbeina börnum í fjármálum.

Sparnaður barna
Börn eiga sína peninga sjálf og því er mikilvægt að fjármunir þeirra séu geymdir á reikningum í þeirra eigin nafni. Sérstakar reglur gilda um fjárráð barna sem ekki eru orðin fjárráða (hafa ekki náð 18 ára aldri) og hvetjum við foreldra og forráðamenn til að kynna sér þær. Við mælum með að auk veltureiknings sé stofnaður sparnaðarreikningur í nafni barnsins til að halda utan um sparifé þeirra.
Fáðu ráðgjöf
Þú getur alltaf pantað tíma hjá ráðgjöfum okkar, hvort sem er í næsta útibúi eða með því að fá símtal frá okkur þar sem við getum farið yfir þín fjármál eða svarað spurningum. Þjónustuverið aðstoðar líka við alla helstu bankaþjónustu í síma 410 4000 og í gegnum netspjallið á landsbankinn.is.

Aldrei of snemmt að byrja að spara

Ertu að flytja til landsins og vantar bankareikning?

Hvað breytist við að verða fjárráða?

Hvað geri ég ef tekjurnar lækka skyndilega?
