- Einstaklingar
- Fyrirtæki
- Markaðurinn
- Umræðan
- Bankinn
Látum gott af okkur leiða
Við erum virkur þátttakandi í samfélaginu og tökum þátt í fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að uppbyggingu og framþróun.
Styrkjum góð málefni
Við veitum árlega náms- og samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans. Ef verkefni falla ekki að skilgreiningu sjóðsins má ávallt senda inn almenna styrktarbeiðni.

Samfélagsstyrkir
Við veitum fimmtán milljónir króna í samfélagsstyrki á hverju ári. Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði mannúðarmála, menningar og lista, menntunar, rannsókna og vísinda, forvarnar- og æskulýðsstarfs og á sviði umhverfismála og náttúruverndar.

Námsstyrkir
Á hverju ári veitum við námsstyrki til viðskiptavina sem eru í námi. Sérstök dómnefnd fer yfir allar umsóknir þegar umsóknarfrestur er liðinn. Dómnefndin er skipuð sérfræðingum úr skóla- og atvinnulífinu ásamt einum fulltrúa bankans. Úthlutun námsstyrkja fer öllu jafna fram í upphafi sumars.

Almennir styrkir
Hægt er að senda inn almenna styrktarbeiðni ef umsókn fellur ekki að skilgreiningu Samfélagssjóðsins. Fyrir utan styrki úr Samfélagssjóði, styðjum við fjölbreytt samfélagsverkefni með ýmsum hætti, m.a. með stuðningi útibúa við verkefni í nærsamfélagi og samstarfssamningum.
Stoltur bakhjarl
Við erum bakhjarl fjölbreyttra samfélagsverkefna sem stuðla að uppbyggingu og framþróun í samfélaginu. Fyrir tilstilli útibúa okkar víðs vegar um land styrkjum við einnig margvíslega verkefni í þeirra nærsamfélagi.

Skólahreysti
Við erum aðalbakhjarl Skólahreysti og leggjum keppninni lið af krafti. Markmið Skólahreysti er að hvetja börn til að taka þátt í alhliða íþróttaupplifun sem byggð er á grunnforsendum almennrar íþróttakennslu og þar sem keppendur vinna að mestu leyti með eigin líkama í þrautum.

Hinsegin dagar
Við styðjum réttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi heilshugar og höfum verið stoltur bakhjarl Hinsegin daga í Reykjavík frá upphafi. Við stöndum m.a. að baki Gleðigöngupottsins, í samstarfi við Hinsegin daga.

Iceland Airwaves
Iceland Airwaves hefur frá upphafi verið mikilvæg viðbót við íslenskt menningarlíf og ómetanlegur vettvangur fyrir íslenska tónlist. Við erum því stolt af því að vera meðal styrktaraðila hátíðarinnar.

Slysavarnafélagið Landsbjörg
Við viljum styðja öflugt slysavarna- og björgunarstarf um allt land og erum einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og ein stærstu sjálfboðaliðasamtök á Íslandi. Markmið starfseminnar er að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.

Knattspyrnusamband Íslands
Landsbankinn er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands. Ásamt fimm öðrum fyrirtækjum styrkir Landsbankinn uppbyggingarstarf íslenskrar knattspyrnu um land allt, öll yngri landslið og A-landslið karla og kvenna.

Um stofnun og rekstur styrktarsjóða
Styrktarsjóðir á Íslandi eiga sér langa hefð og gera má ráð fyrir að við þekkjum flest til einhverra styrktarsjóða og starfsemi þeirra. Í árslok 2018 voru yfir 700 styrktarsjóðir virkir á sjóðaskrá. Að ýmsu er að huga við stofnun og rekstur styrktarsjóða og hér er farið yfir helstu þættina.

Frábært samstarf við hæfileikaríkt tónlistarfólk
Við lítum um öxl og skoðum þrjátíu myndbönd sem Landsbankinn og Iceland Airwaves hafa framleitt með ungu tónlistarfólki snemma á ferli þeirra.

„Margir héldu að Gunni og Felix væru pabbar mínir en ekki Baldur og Felix“
„Það er frábært að Hinsegin dagar séu orðnir fjölskylduhátíð“ segir Álfrún Perla Baldursdóttir. Hún á tvo pabba og þátttaka í Gleðigöngunni er ómissandi fjölskylduhefð hjá þeim.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Landsbankinn hf.
Austurstræti 11, 155 Reykjavík
Kt. 471008-0280
Swift/BIC: NBIIISRE
Sími: 410 4000
landsbankinn@landsbankinn.is
Lagalegur fyrirvari
Vefkökur
Með því að smella á “Leyfa allar” samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Tryggja virkni vefsins
Greina notkun svo við getum mælt og aukið gæði vefsins
Notaðar til að birta persónubundnar auglýsingar