Fræðsla og um­ræða um netör­yggi ber ár­ang­ur

Þrátt fyrir að meira sé nú um tilraunir til hvers kyns netsvika falla færri í gildruna. Það sem af er árinu 2020 hefur fjársvikamálum á netinu, þar sem svikin takast og tjón verður, fækkað um helming miðað við sama tíma árið 2019. Við teljum að þróunin sé að mestu leyti fræðslu og umræðu um netöryggi að þakka en kórónuveirufaraldurinn hefur líka sín áhrif.
8. október 2020

Á alþjóðavísu eru netsvik flokkuð í ellefu flokka. Það sem af er árinu 2020 hefur þróunin verið jákvæð í þremur þeirra en þessi breyting dugar til að draga heildarfjölda netsvikamála ársins 2020 niður um helming, haldi þróunin áfram. Hér er miðað við skráningu hjá Landsbankanum en ekki eru til upplýsingar um ástandið á landsvísu.

En hvað breyttist? Að okkar mati er helsta skýringin sú að vitundarvakning hefur orðið í netöryggismálum. Veturinn 2016-2017, þegar fjársvikatilraunir höfðu verið í örum vexti, hóf Landsbankinn að gefa út fræðsluefni um netöryggismál sem við birtum á vef bankans, í auglýsingum, á Facebook og víðar. Lögreglan, fjölmiðlar og fleiri aðilar hafa einnig fjallað um þessi mál og birt fjölda frétta og greina með aðvörunum og leiðbeiningum til fólks og fyrirtækja. Fólk þekkir nú betur hætturnar og kann að varast þær. Árangurinn sýnir að fræðsla gegnir lykilhlutverki í baráttunni við netsvikin.

Netöryggi

Mikil fækkun Airbnb-svika

Öll þekkjum við að kórónuveirufaraldurinn hefur leitt til færri utanlandsferða. Um leið hefur fjársvikatilraunum vegna heimagistinga erlendis fækkað um 46% á milli ára. Einkum hefur orðið mikill samdráttur í árangursríkum Airbnb-svikum en þau felast til dæmis í því að svikarar villa á sér heimildir til að innheimta gistigjald utan Airbnb-kerfisins, með beinni millifærslu frá leigutaka til glæpamannsins. Falska innheimtan getur m.a. falist í tilraunum til að innheimta „bætur“ vegna meints tjóns sem leigutakar eru sagðir hafa valdið á fasteigninni.

Þekkja fyrirmælafalsanir betur

Enn er mikið sótt að fyrirtækjum með fyrirmælafölsunum en árangurshlutfall glæpamanna hefur dregist saman um 42% frá því sem mest lét á árunum 2016 til 2018. Um er að ræða tilraunir til að svíkja fé út úr fyrirtækjum með því að falsa tölvupósta og gefa fölsk fyrirmæli um greiðslur inn á reikninga sem svikararnir hafa yfir að ráða. Samtöl við viðskiptavini gefa eindregið til kynna að með bættu verklagi fyrirtækja takist þeim nú að greina slíkar tilraunir betur og hraðar.

Fjárfestasvikum fækkar

Síðast en ekki síst ber að nefna 88% fækkun fjárfestasvika sem voru algengustu svikin gegn einstaklingum á árinu 2019. Fjárfestasvik geta t.d. falist í óvæntu símtali, skilaboðum, tölvupósti, færslu á samfélagsmiðlum eða auglýsingum á netinu. Oft snúast þau um fjárfestingu í rafmynt eða kaupum á hlutabréfum. Fækkunin skýrist einkum af tvennu. 

Annars vegar hafa samfélagsmiðlar náð ívið betri árangri við að greina og fjarlægja falskar auglýsingar og hins vegar eru neytendur betur á varðbergi.

Verum vakandi

Þrátt fyrir að þróunin sé á ýmsan hátt jákvæð er engu að síður töluvert um netsvik. Á þessu ári hefur t.a.m. þurft að loka um 7% fleiri kreditkortum hjá viðskiptavinum bankans, miðað við sama tíma árið 2019, vegna kortasvika eða gruns um svik. Í september 2020 birti Landsbankinn grein um ástarsvik og umfang þeirra. Umfjöllunin ein og sér varð til þess að fleiri fórnarlömb stigu fram. Þar sannaðist aftur gildi opinnar umræðu um erfið mál.

Svikahrappar munu halda áfram að leita leiða til að blekkja fólk og svíkja. Við lítum svo á að hlutverk Landsbankans í netöryggimálum sé m.a. að auðvelda fólki að meta gildi og réttmæti upplýsinga, að hjálpa því við að draga ályktanir og verjast svikatilraunum. Á Umræðuvef Landsbankans er fjölbreytt fræðsluefni um varnir gegn netsvikum undir yfirskriftinni Verum vakandi. 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 8. október 2020.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Öryggi í netverslun
30. okt. 2023
Góð ráð um varnir gegn netsvikum
Netsvik hafa aukist verulega. Við höfum tekið saman aðgengilegar upplýsingar um hvernig hægt er að þekkja netsvik og verjast þeim.
31. ágúst 2023
Ef þú lest ekki skilaboðin getur þú tapað miklum peningum!
Ertu örugglega að nota rafrænu skilríkin til að staðfesta eitthvað sem þú vilt í raun og veru gera? Eða eru svikarar kannski að plata þig til að nota rafrænu skilríkin til að hleypa sér inn í bankaappið þitt?
Netöryggi
3. ágúst 2023
Yngri hópur fellur fyrir netsvikum – erum við nógu varkár?
Netsvikum og tilraunum til netsvika hefur fjölgað mikið í sumar. Ekki aðeins eru málin fleiri heldur eru fórnarlömbin líka yngri en áður. Möguleg skýring á aukningunni er sú að nú er meira um að svikin séu reynd utan opnunartíma fyrirtækja, þ.e. um kvöld og um helgar og þegar líklegt er að fólk sé í sumarfríi og því síður á varðbergi.
Öryggi í netverslun
28. júlí 2023
Hvernig á að bregðast við svikum?
Ef þig grunar að þú hafir lent í klóm svikara, sérð óeðlilegar færslur á reikningum eða greiðslukortum eða óviðkomandi hefur komist inn í netbankann þinn, er mikilvægt að hafa samband við bankann eins fljótt og hægt er.
Netöryggi
13. jan. 2023
Varist svik í gegnum samfélagsmiðla – aldrei framsenda SMS-kóða
Við viljum vara viðskiptavini okkar við netsvikum, sérstaklega svikum sem fara fram í gegnum samfélagsmiðla og skilaboðaforrit, en mikið hefur borið á þeim undanfarið.
Öryggi í netverslun
4. nóv. 2022
14 góð ráð til að auka öryggi í netverslun
Verslun á netinu er ekki hættulaus, tölvuþrjótar leggja mikið á sig til að stela greiðsluupplýsingum eða svíkja fé út úr fólki með öðrum hætti. Hér fyrir neðan eru nokkur einföld ráð til að minnka hættuna á netsvikum.
8. júlí 2022
Mundu eftir netörygginu - líka þegar þú ert í fríi
Tilraunum til hvers kyns netsvika hefur fjölgað mikið og reynslan sýnir að þeim fjölgar á sumrin. Ástæðan er talin vera sú að netsvikarar vonast eftir því að þá sé fólk sé kærulausara og sé líklegra til að taka þátt í fölskum Facebook-leik, smella á hlekk í hugsunarleysi eða skoða ný „fjárfestingartækifæri“.
12. maí 2022
Ekki smella á hlekkinn – og ekki falla í gildruna
Notkun á tölvum og símum er stór hluti af okkar daglega lífi og því nauðsynlegt að vera meðvituð og upplýst um hætturnar sem leynast á netinu.
New temp image
8. mars 2022
Upptökur af fróðlegum fundi um netöryggismál
Landsbankinn stóð fyrir vel heppnuðum fundi um netöryggismál fimmtudaginn 3. mars 2022. Á fundinum var m.a. fjallað um hvernig skipulagðir glæpahópar beina spjótum sínum að einstaklingum og fyrirtækjum og hvernig verjast má atlögum þeirra.
2. mars 2022
Tinder-svindlarinn og hætturnar á netinu
Tilraunir til fjársvika á netinu aukast stöðugt og dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað milljónum til svindlara á netinu. Oft er verið að spila með tilfinningar og góðmennsku fólks og mikilvægt að fólk þekki einkenni svikatilrauna, hvort sem þau beinast gegn þér eða þínum nánustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur