22. ágúst 2016 09:24
Lindarhvoll selur 6,38% hlut í Reitum fyrir 3,9 ma.kr.
Útboði á eignarhlut ríkissjóðs Íslands í Reitum fasteignafélagi hf. lauk klukkan 8:30 í dag, mánudaginn 22. ágúst 2016. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu.
Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reitum, eða sem nemur 9,9% af heildarhlutafé í Reitum.
Sölugengi í útboðinu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heildarnafnverð samþykktra tilboða, eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða sem samsvara 6,38% af heildarhlutafé Reita. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir skerðingu er því rúmlega 3,9 ma.kr. Að útboðinu loknu á ríkissjóður ekki eignarhlut í Reitum.
Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.
Viðskiptadagur vegna útboðsins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 24. ágúst 2016.
Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 19. ágúst 2016.
22. febrúar 2019 09:11
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði samkvæmt tölum Þjóðskrár um 0,4% milli desember og janúar. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,4% og verð á sérbýli hækkaði um 0,3%.
Nánar21. febrúar 2019 10:39
Í fyrsta sinn í áratugi stefnir í að engin loðna verði veidd hér við land. Loðna er næst mikilvægasta útflutningsfisktegundin á eftir þorski og munu áhrif þess verða allnokkur á landsframleiðslu og þar með á hagvöxt. Útflutningsverðmæti loðnu nam 17,8 milljörðum kr. í fyrra.
Nánar19. febrúar 2019 10:40
Bankasýsla ríkisins óskaði þann 12. febrúar sl. eftir upplýsingum um sjónarmið bankaráðs í tengslum við ákvarðanir um hækkun launa bankastjóra Landsbankans. Svar bankaráðs hefur verið sent til Bankasýslunnar og er jafnframt birt á vef bankans.
Nánar